29. september 2026 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Education at a Glance 2026: Þróun menntamála og kennaraskortur

{image.Description}

Alþjóðleg skýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), Education at a Glance 2026, var birt í dag. Skýrslan kemur út árlega og setur stöðu íslensks menntakerfis í alþjóðlegt samhengi. Í ár er sjónum sérstaklega beint að þróun menntamála innan OECD síðastliðinn áratug og kennaraskorti og áhrifum hans á skólastarf. OECD birtir einnig landsskýrslur um sérhvert þátttökuríki:

Kennaraskortur hefur samkvæmt skýrslunni áhrif á flest menntakerfi OECD-ríkjanna, þó í mismiklum mæli. Erfiðleikar við ráðningar eru oft meiri í dreifbýli og á svæðum sem standa höllum fæti. Skýrslan sýnir að skorturinn er sérstaklega mikill í námsgreinum á borð við stærðfræði og náttúruvísindi. Þrátt fyrir það fjölgar kennurum hlutfallslega meira en nemendum innan OECD og er það einnig þróunin á Íslandi. Fjöldi kennslustunda sem hlutfall af heildarvinnutíma á grunnskólastigi og sérstaklega á framhaldsstigi er lágt hér á landi borið saman við önnur OECD-ríki.

Aðrar niðurstöður úr landsskýrslunni:

  • Fjárframlag: Ísland ver meira opinberu fé til menntunar en OECD-ríkin að meðaltali eða 5,2% af vergri landsframleiðslu borið saman við 4,0% meðaltal OECD-ríkja samkvæmt nýjustu tölum.
  • Menntunarstig: 44% fólks á aldrinum 25-64 ára hafa lokið háskólamenntun, sem er svipað og 43% meðaltal OECD.
  • Menntun umfram grunnskólanáms: Hlutfall ungs fólks á aldrinum 25–34 ára sem er með enga menntun eftir skyldunám er 19% á Íslandi en 12% að meðaltali innan OECD. Hlutfallið fer lækkandi innan OECD og á Íslandi en það stóð í 27% hérlendis árið 2015.
  • Hlutfall utan náms og vinnu:  5% fólks á aldrinum 18-24 ára voru hvorki í námi né vinnu (NEET) árið 2025, samanborið við 13% að meðaltali innan OECD.
  • Þátttaka í leikskólastarfi: 96% barna frá þriggja ára aldri og fram að upphafi grunnskóla voru skráð í leikskóla árið 2024. Meðaltal OECD var 90%.
  • Opinber fjárfesting yfir meðaltali: Útgjöld hins opinbera á hvern nemanda frá grunnskóla til háskóla voru 19.675 Bandaríkjadalir leiðréttir fyrir kaupmætti árið 2023. Meðaltal OECD var 13.599 dalir.
  • Kennurum fjölgar hraðar en nemendum: Stöðugildum grunnskólakennara fjölgaði um 16% frá 2015 til 2024, en nemendum fjölgaði um 6%. Innan OECD fjölgaði kennurum um 13% og nemendum um 2% að meðaltali.

Fjöldi nema á hvern kennara og kennsluhlutfall

Nemendafjöldi einn ákvarðar ekki hversu marga kennara menntakerfi þarf. Bekkjarstærðir, vinnutími kennara og kennslutími nemenda hafa einnig áhrif. Frá 2015 til 2024 fjölgaði stöðugildum kennara í grunnskólum á Íslandi um 16%, en nemendum fjölgaði um 6%. Innan OECD fjölgaði kennurum um 13% og nemendum um 2% að meðaltali.

Svipuð þróun sést á leikskólastigi. Börnum fækkaði um 5% á Íslandi frá 2015 til 2024 en leikskólakennurum fjölgaði um 12%. Fjöldi barna á hvern kennara lækkaði því um 16%. Innan OECD fækkaði börnum um 2%, kennurum fjölgaði um 14% og fjöldi barna á hvern kennara lækkaði um 14%.

Kennarar verja aðeins hluta vinnutíma síns í beina kennslu. Á Íslandi var meðalfjöldi kennslustunda 624 klukkustundir á ári bæði á yngra stigi grunnskólans og á unglingastigi. Meðaltal OECD stóð í 770 og 710 klukkustundum á þessum skólastigum. Á framhaldsskólastigi á Íslandi stóð meðalklukkustundafjöldi beinnar kennslu í 480 klukkustundum, borið saman við OECD-meðaltalið: 667 klukkustundir á ári.

Árlegur samningsbundinn kennslutími kennara árið 2025 eftir OECD-ríkjum og skólastigum*

* Mynd 2 í landsskýrslu um Ísland

Fjármögnun

Meginhluti fjármögnunar menntunar kemur frá hinu opinbera. Opinber útgjöld frá grunnskóla til og með háskóla voru 19.675 Bandaríkjadalir á hvern nemanda árið 2023, leiðrétt fyrir kaupmætti. Meðaltal OECD var 13.599 dalir. Munur milli OECD-ríkja var mikill og spannaði frá 3.398 upp í 32.832 dali á hvern nemanda. Allar tölur eru á verðlagi 2020.

Útgjöld eftir skólastigum:

  • Leikskólastig: Í mörgum löndum jukust útgjöld hins opinbera á hvert barn til leikskólamála verulega á árunum 2015–2023. Þetta átti einnig við um Ísland, þar sem útgjöld á hvert barn á aldrinum 3–5 ára námu 18.656 dölum árið 2023, samanborið við 12.215 dali árið 2015.
  • Yngra stig grunnskóla: Útgjöld á hvern nemanda voru 20.889 dalir á Íslandi árið 2023, en 12.893 dalir að meðaltali innan OECD á þessu skólastigi.
  • Unglingastig grunnskóla: Útgjöld á hvern nemanda voru 20.973 dalir á Íslandi, samanborið við 14.275 dali innan OECD.
  • Bóknám framhaldsskóla: Opinber útgjöld á hvern nemanda voru 12.998 dalir, en meðaltal OECD var 12.421 dalur.
  • Verk- og starfsnám framhaldsskóla: Útgjöld á hvern nemanda voru 20.147 dalir á Íslandi, samanborið við 13.901 dal að meðaltali innan OECD.