30. september 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Ársskýrsla um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería á Íslandi

{image.Description}

Heildarsala sýklalyfja hjá mönnum árið 2025 dróst saman um 4,6% frá fyrra ári en notkunin er þó enn meiri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndunum. Sýklalyfjaónæmi er enn almennt lítið á Íslandi í evrópskum samanburði en þróun ákveðinna gerða ónæmis veldur áhyggjum. Þetta er meðal þess sem lesa má í nýbirtri ársskýrslu um sýklalyfjanæmi baktería hjá mönnum og dýrum á Íslandi árið 2025.

Fjallað er um skýrsluna í tilkynningu á vef embættis landlæknis þar sem skýrslan er jafnframt aðgengileg. Sóttvarnalæknir segir niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi áframhaldandi vöktunar og samstarfs stjórnvalda sem fara með heilbrigðismál, umhverfismál og heilbrigði dýra.

Aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn sýklalyfjaónæmi var gefin út árið 2024 og er leiðarvísir um þær aðgerðir sem mikilvægt er að grípa til hérlendis til þess að sporna við frekari útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.