30. september 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar innanlands - auglýsing nr. 2/2026

{image.Description}

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 42.100
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 23.900
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 18.200
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 9.100

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2026. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2026.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.