30. september 2026 /
Innviðaráðuneytið

Jöfnunarsjóður: Áætlanir samþykktar fyrir úthlutanir árið 2027

{image.Description}
Hari

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlanir um úthlutanir fyrir árið 2027.

Almennt jöfnunarframlag Jöfnunarsjóðs 2027

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um fyrstu áætlun almennra jöfnunarframlaga fyrir árið 2027. Framlögin eru reiknuð á grundvelli nýrra laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 56/2025.

Heildarfjárhæð almennra jöfnunarframlaga nemur 31.000 m.kr. Af þeirri fjárhæð reiknast 1,75% í svokallað höfuðstaðaálag, eða 542,5 m.kr. Til almennrar úthlutunar koma því 30.457,5 m.kr. sem skipt er samkvæmt 6.-9. gr. laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

Gert er ráð fyrir því að áætlunin verði uppfærð jafnt og þétt eftir því sem forsendur gefa tilefni til.

Almenn framlög vegna málaflokks fatlaðs fólks 2027

Ráðherra samþykkti jafnframt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um fyrstu áætlun almennra framlaga sjóðsins vegna málefna fatlaðs fólks fyrir árið 2027. Áætluð framlög nema 45.070 m.kr. og byggir áætlunin á reglugerð nr. 1123/2025 um framlög Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk. Að baki áætluninni eru 1.604 notendur.

Heildarfjárhæð framlaga vegna málaflokks fatlaðs fólks ræðst af fastri 1,44% hlutdeild í útsvarsstofni og 0,235% skatttekna ríkissjóðs. Stærsti hluti þeirra rennur í almenn framlög sem skiptast á grundvelli:

  • Samræmdrar stuðningsþarfar notenda (88%)
  • Útsvarsstofns sveitarfélaga (10,75%)
  • Innviða, s.s. fjarlægða innan þjónustusvæða (1,25%)

Þessi fyrsta áætlun verður grundvöllur greiðslna sjóðsins fram að næstu áætlun. Framlögin eru greidd mánaðarlega til sveitarfélaga og fer fyrsta greiðsla ársins 2027 fram í lok febrúar nk.

Almenn framlög vegna reksturs grunnskóla 2027

Ráðherra samþykkti einnig tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um áætlaða úthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2027, sbr. reglugerð nr. 351/2002.

Áætluð fjárhæð framlaga nemur 17.210 m.kr. Þar af eru 60 m.kr. vegna áætlaðs uppgjörs framlaga ársins 2025.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar.

Framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða 2027

Ráðherra hefur ennfremur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um áætlaða úthlutun framlaga sveitarfélaga sem bjóða nemendum í grunnskólum upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir árið 2027 sbr. lög nr. 56/2025 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

Samkvæmt áætluninni er heildarfjármagn til ráðstöfunar 4.177,9 m.kr. á árinu 2027. Framlögunum er skipt hlutfallslega milli sveitarfélaga á grundvelli heildarfjölda nemenda í grunnskólum í hverju sveitarfélagi, miðað við 1. janúar 2026. greiðast mánaðarlega til sveitarfélaga að undanskildum júlímánuði, auk þess sem úthlutun framlagsins í ágústmánuði tekur mið af því að skólaárið hefst um miðjan mánuðinn. Áætlunin verður uppfærð í ágúst nk. miðað við fjölda grunnskólabarna 1. janúar 2027.

Framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli 2027

Ráðherra hefur jafnframt samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um áætluð framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli fyrir árið 2027.

Framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli tilheyrðu áður B-hluta útgjaldajöfnunarframlaga en með gildistöku nýrra laga um jöfnunarsjóð urðu framlögin að sérstökum framlögum. Jafnframt var gerð sú breyting að tekjutenging var afnumin sem felur í sér að framlög til sveitarfélaga vegna skólaaksturs úr dreifbýli skerðast ekki á grundvelli tekna.

Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að 625 m.kr. verði úthlutað í framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli á árinu 2027. Framlögin verða greidd með jöfnum mánaðarlegum greiðslum.

Sérþarfir fatlaðra grunnskólabarna 2027

Ráðherra samþykkti einnig tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóð um áætlun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra grunnskólabarna fyrir árið 2027. Framlögin sem nema 4.332,5 m.kr. eru reiknuð með öllum börnum með SIS-C mat í flokki 4 eða hærra í hverju sveitarfélagi án umsókna, utan Reykjavíkurborgarinnar. Framlag til borgarinnar byggist á sérstökum samningi.