Nýsköpunar- og þróunarsjóður fjölmiðla: umsóknarreglur og gögn
Auglýst verður á næstu dögum eftir umsóknum um styrki úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla. Sjóðurinn er hluti af aðgerðaráætlun fjölmiðla - nánar tiltekið aðgerð 8, sem kveður á um að stutt verði við þróun nýrra fréttamiðla og nýsköpunarverkefni innan eldri fréttamiðla, þar á meðal þróun tæknilegrar nýbreytni og nýrra miðlunarleiða. Undir tæknilega nýbreytni falla t.d. stafrænar lausnir sem byggjast á gervigreind og lausnir sem nýtast við sölu vefáskrifta.
Reglur nr. 986/2026 um úthlutun styrkja úr sjóðnum voru birtar 14. september 2026. Í reglunum kemur fram að sjóðnum sé ætlað að veita styrki til skilgreindra verkefna sem stuðla að nýsköpun, tækniþróun og þróun nýrra viðskiptaaðgerða á einkareknum fjölmiðlum. Úthlutanir úr sjóðnum verða annars vegar í formi verkefnastyrkja til stofnunar og þróunar nýrra fréttamiðla og hins vegar til nýsköpunarverkefna innan starfandi fréttamiðla. Til úthlutunar árið 2026 verða 40 m.kr. að frádregnum umsýslukostnaði.
Væntanlegum umsækjendum er bent á að kynna sér reglur nr. 986/2026 í heild sinni og hvaða kröfur eru gerðar um gögn sem eiga að fylgja umsókn.
Í 7. gr. reglnanna eru tilgreind skilyrði fyrir styrkveitingu til nýrra fjölmiðla og í 8. gr. eru tilgreind skilyrði fyrir styrkveitingu til starfandi fjölmiðla. Í 4. gr. er getið sérstakra atriða sem þurfa að koma fram í umsókn. Umsækjendum er heimilt að sækja um styrk til fleiri verkefna en eins en ber þá að skila sérstakri umsókn fyrir hvert verkefni fyrir sig.
Rannís annast umsjón með sjóðnum og auglýsir eftir umsóknum. Opnað verður fyrir umsóknir á vef Rannís í október og verður umsóknarfrestur til 16. nóvember 2026.