Breytingar á námsmati við lok grunnskóla
Markmið fyrirhugaðra breytinga á námsmati við lok grunnskóla er að gera framsetningu einkunna skýrari og samræmdari og þannig stuðla að auknu jafnræði nemenda, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Jafnframt er stefnt að því að bæta upplýsingagjöf til nemenda og foreldra þannig að þeir eigi auðveldara með að átta sig á stöðu í námi, framförum og þeirri hæfni sem nemandinn hefur náð.
Mikilvægt er að greina á milli einkunna fyrir einstök verkefni og próf annars vegar og lokaeinkunnar eftir heilt skólaár hins vegar.
Þótt sami talnakvarði geti komið við sögu er verið að meta ólíka hluti. Einkunn fyrir einstakt verkefni lýsir frammistöðu í því verkefni, en lokaeinkunn er heildstætt mat á þeirri hæfni sem nemandinn hefur sýnt yfir skólaárið, með hliðsjón af hæfniviðmiðum aðalnámskrár og fjölbreyttum matsgögnum.
Hér á eftir er nánar farið yfir hvernig fyrirhugaður einkunnakvarði virkar og hvað einstakar einkunnir eiga að segja um stöðu nemandans.
Þegar kemur að námsmati á verkefnum og einstaka prófum má nota einkunnakvarðann 1 - 10. Þá getur einkunnin 7 merkt að nemandinn hafi náð 70% árangri í viðkomandi verkefni eða prófi.
Sé hins vegar um að ræða „lokaeinkunn“ nemanda eftir heilt skólaár, skal hún birt á kvarðanum 4 - 10. Hér er afar mikilvægt að hafa í huga að lokaeinkunn samkvæmt aðalnámskrá er mat á „hæfni” nemenda eftir heilt skólaár en er ekki einkunn fyrir eitt lokapróf. Nemendur fá ýmis konar leiðsögn og endurgjöf yfir skólaárið sem felur ekki alltaf í sér eina einkunn. Hæfniviðmið aðalnámskrár sem kennarar byggja kennslu á eru lýsing á því sem nemandi á að hafa náð tökum á.
Lokaeinkunn er því annars eðlis en einkunnir fyrir einstök próf og verkefni. Lokaeinkunn skal lýsa þeirri „hæfni“ sem nemandinn hefur náð eftir skólaárið. Við lokamat á hæfni nemenda er því litið til allra verkefna, prófa og annarrar frammistöðu sem nemandi hefur sýnt af sér yfir allan veturinn.
Ekki er talið forsvaranlegt að gefa barni lokaeinkunnina 1, 2 eða 3 eftir heilt skólaár. Lokaeinkunn í grunnskóla á fyrst og fremst að meta stöðu nemandans í námi. Einkunnin 4 segir einfaldlega að hæfniviðmiðum hafi ekki verið náð og þá fylgir umsögn með lokaeinkunn sem segir hvar nemandinn stendur og hvað þarf að bæta.
Eins og fyrr segir þá er lokaeinkunn byggð á frammistöðu alls skólaársins en ekki einu prófi. Að sjálfsögðu geta nemendur fengið 1 - 4 í einkunn fyrir einstök próf og verkefni sem tekin eru á skólaárinu. Fái nemandi ítrekaðar einkunnir á bilinu 1 - 4 kallar það eftir viðbrögðum skólans í formi aukins stuðnings eða einstaklingsmiðaðs náms.
Merking lokaeinkunna er í meginatriðum þessi:
- Einkunnin 4 sýnir að hæfniviðmiðum hefur ekki verið náð.
- Einkunnirnar 5 og 6 lýsa stigvaxandi hæfni hjá nemandanum.
- Einkunnin 7 sýnir að nemandinn hefur náð lágmarksviðmiði til að hefja nám á öðru hæfniþrepi framhaldsskóla í íslensku, stærðfræði og ensku.
- Einkunnirnar 8–10 lýsa stigvaxandi dýpt, öryggi, sjálfstæði og aukinni færni í að beita þekkingu. Þannig fær nemandi 9 eða 10 fyrir framúrskarandi tök á þeirri hæfni sem gerð er krafa um í grunnskóla. Að gefnu tilefni er tekið fram að ekki er gerð krafa að slíkur nemandi þurfi að ljúka framhaldsskólaáfanga.