1. október 2026 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Casa Christi í MR opni að nýju til kennslu haustið 2030

{image.Description}
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, undirrita viljayfirlýsingu um Casa Christi á afmælishátíð MR í dag

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, lýsa yfir sameiginlegum vilja að undirbúa endurbætur á Casa Christi við MR. Markmiðið er að húsið verði kennsluhæft á ný haustið 2030 og að allt skólastarf MR geti þá farið fram á skólareitnum við Lækjargötu.

Casa Christi við Amtmannsstíg 2b er mikilvægur hluti af húsakosti Menntaskólans í Reykjavík og þeirri sögulegu heild sem skólareiturinn myndar í miðborg Reykjavíkur. Húsið hefur um langt skeið hýst kennslu og skólastarf en frá árinu 2021 hefur ekki verið unnt að nýta það til kennslu. Skólinn hefur því þurft að leigja annað húsnæði, með tilheyrandi kostnaði og hluti starfseminnar farið fram utan skólareitsins.

„Við eigum að vera stolt af sögu MR, en stoltið eitt og sér lagar engin hús. Unga fólkið okkar og kennararnir eiga skilið almennilega aðstöðu og það er löngu tímabært að koma þessu sögufræga húsi aftur í notkun. Nú tökum við fyrsta skrefið svo að nemendur komist aftur í Casa Christi og skólastarf MR sameinist á sínum rétta stað. Skóli er svo miklu meira en hús og kennslustofur. Skóli er nefnilega samfélag. Um það viljum við standa vörð. Hér erum við því að varðveita merka sögu en fyrst og fremst að hugsa um unga fólkið sem skrifar næstu kafla hennar,“ segir Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra.

Frumathugunin byggist á greinargerð um ástand hússins sem unnin var árið 2025. Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum verður falið að kostnaðarmeta þær tillögur sem þar eru lagðar fram. Kostnaðaráætlunin verður síðan lögð til grundvallar frekari ákvörðunum um endurbætur og fjármögnun.

„Við erum auðvitað afskaplega glöð að finna fyrir vilja menntamálaráðuneytis að bæta úr brýnni húsnæðisþörf skólans. Afar mikilvægt er að koma allri starfsemi skólans fyrir á einum stað í viðunnandi húsnæði og sjá fyrir sér varanlega og metnaðarfulla húsnæðislausn til framtíðar. Með endurgerð á húsinu Casa Christi, þannig að það haldi upphaflegu útliti og einkennum en þjóni jafnframt þörfum skólans sem best, verður hægt að varðveita menningarsögulegt gildi húsanna á þessum áberandi reit í miðbæ Reykjavíkur og jafnframt tryggja komandi kynslóðum góða aðstöðu til að stunda nám við skólann,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, og Halla Tómasdóttir forseti Íslands á 180 ára afmælishátíð MR í dag

Viljayfirlýsingin er hluti af áherslu mennta- og barnamálaráðherra á að bæta húsakost framhaldsskóla og tryggja nemendum og starfsfólki góða og nútímalega aðstöðu. Samhliða undirbúningi vegna Casa Christi er unnið að umfangsmikilli uppbyggingu verknámsaðstöðu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Menntaskólann á Ísafirði, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Verkmenntaskólann á Akureyri, auk uppbyggingar nýs húsnæðis fyrir Tækniskólann.

„Við erum að byggja markvisst upp framhaldsskólana um land allt. Gott húsnæði og öflug námsaðstaða eru grunnforsenda fjölbreytts og metnaðarfulls skólastarfs. Nemendur og starfsfólk eiga skilið að húsakosturinn styðji við námið, kennsluna og það góða starf sem fram fer í skólunum á hverjum degi,“ segir Inga Sæland.

Hákon Kristjánsson, formaður nemendafélags MR