1. október 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Skilyrðum breytt og ríkari kröfur gerðar til umsækjenda

{image.Description}

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp um breytingar á lögum um dvalarleyfi fyrir útlendinga. Breytingarnar snúa fyrst og fremst að fólki frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins og tilgangurinn er að færa löggjöfina nær því sem gildir á öðrum Norðurlöndum.

Meðal helstu breytinga í frumvarpinu má nefna:

  • Sex ára búseta í stað fjögurra áður en sótt er um ótímabundið dvalarleyfi,
  • Breytt aldursskilyrði maka og tveggja ára sambúð
  • Breytt skilyrði vegna fjölskyldusameiningar
  • Nýtt leyfi fyrir þolendur brota á vinnumarkaði
  • Brottfall dvalarleyfa vegna vistráðningar (au pair) fyrir fólk utan EES.

Frumvarpið byggir á tillögum starfshóps sem dómsmálaráðherra skipaði árið 2025. Hópurinn skilaði skýrslu sem nefnist Ísland í örum vexti.

Í skýrslunni kom fram að 25 atriði í íslenskum lögum eða framkvæmd væru frábrugðin því sem þekktist í nágrannaríkjum. Oftast væri það þannig að reglur eða lög væru vægari hér á landi.

Starfshópurinn taldi þetta meðal annars hafa leitt til þess fólk í viðkvæmri stöðu væri útsettara fyrir misnotkun. Breytingunum er því ekki síst ætlað að bæta stöðu þolenda mansals og koma í veg fyrir brot á vinnumarkaði.

Með frumvarpinu er ábyrgð stjórnvalda skýrð um leið og kröfur til umsækjenda eru auknar. Frumvarpið fellir ekki úr gildi leyfi sem þegar hafa verið veitt og réttur EES-borgara til að búa hér og starfa helst óbreyttur.

„Við höfum á of mörgum sviðum verið með vægari reglur en nágrannaríki okkar. Við erum að setja stefnu til þess að kerfið sé bæði skýrt og sanngjarnt. Með þessu frumvarpi færum við okkar reglur nær því sem gildir á hinum Norðurlöndunum, gerum ríkari kröfur til þeirra sem ætla að setjast hér að á sama tíma og við styrkjum vernd fólk sem er útsett fyrir misnotkun,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir,  dómsmálaráðherra.