Ungt fólk mótar framtíðina á Vísinda- og nýsköpunarþingi 2026
Fræðsla um gervigreind, jöfn tækifæri til menntunar og ábyrg nýting tækni voru meðal áherslna framhaldsskólanema á Vísinda- og nýsköpunarþingi 2026, sem fór fram í Grósku föstudaginn 25. september.
Þingið var haldið á vegum Vísinda- og nýsköpunarráðs með stuðningi forsætisráðuneytisins, mennta- og barnamálaráðuneytisins og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Áhersla var á að virkja ungt fólk og var tveimur nemendum frá hverjum framhaldsskóla landsins var boðið að taka þátt og ræða við fulltrúa vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og stjórnvalda.
Markmið þingsins var að skapa vettvang fyrir opna og upplýsta umræðu um framtíð Íslands og hlutverk vísinda og nýsköpunar í samfélagi, atvinnulífi og menntun. Jafnframt var lögð áhersla á að efla vísindamiðlun og sýna hvernig þekking, rannsóknir og þróun geta orðið að lausnum og verðmætum fyrir samfélagið.
Nýjar leiðir
Ráðherrar ráðuneytanna þriggja tóku allir virkan þátt en daginn fyrir þingið var haldin móttaka fyrir nemendurna, þar sem Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, bauð þá velkomna og þeir fengu tækifæri til tengslamyndunar.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra opnaði þingið morguninn eftir með myndbandsávarpi þar sem hún var stödd erlendis. Í kjölfarið fluttu sérfræðingar og frumkvöðlar erindi um fjölbreytt viðfangsefni á sviði vísinda og nýsköpunar og sýndu með skýrum dæmum hvernig rannsóknir, þekking og nýsköpun geta orðið að lausnum og verðmætum fyrir samfélagið.
Benedek Regoczi frá Sjávarklasanum fjallaði um nýtingu fisks og hvernig markviss verkefnahugsun getur leitt af sér fjölbreyttari lausnir. Högna Hringsdóttir, tæknistjóri hjá Össuri, sýndi hvernig djúpur skilningur á vandamáli og samtal við notendur getur orðið kveikja að nýjum lausnum. Berglind Johansen frá BIOEFFECT ræddi leiðina frá vísindum til verðmætasköpunar og hvernig varaleiðin getur orðið aðalleiðin. Vala Hjördísardóttir fjallaði um nýtingu ljósleiðara og getu þeirra til að verða eins konar „túlkar“ á það sem gerist í umhverfinu, meðal annars í tengslum við eldfjöll og orku, og Finnur Pind frá Treble Technologies sagði frá vegferð frumkvöðlafyrirtækisins og þeirri áskorun að kenna gervigreind að „hlusta“.
Í pallborðinu „Frá rannsóknarstofunni út í raunveruleikann“ spurðu nemendur um nám, störf, vísindi og nýsköpun, auk tilgangs og siðfræði. Þar kom meðal annars fram að leiðir fólks í námi og starfi séu ólíkar og mikilvægt sé að prófa sig áfram og leyfa áhugasviðum og markmiðum að þróast. Frumkvöðlarnir hvöttu nemendur til að fylgja áhuga sínum og vera óhræddir við að fara nýjar leiðir.
Skilaboð ungs fólks
Eftir hádegi tóku nemendur sjálfir við keflinu. Þeir unnu í hópum að framtíðartillögum og ræddu meðal annars nám og færni framtíðar, gervigreind og tækni, nýsköpun og atvinnulíf, lífsgæði, loftslag og sjálfbæra framtíð.
Meðal hugmynda sem komu fram voru aukin kennsla og fræðsla um gervigreind, efling menntunar og jöfn tækifæri. Nemendurnir lögðu jafnframt áherslu á að ný tækni nýttist fólki á ábyrgan hátt og að sköpunarkraftur, gagnrýnin hugsun og aðrir mannlegir eiginleikar héldu áfram að gegna lykilhlutverki.
Að lokinni vinnustofunni kynntu hóparnir niðurstöður sínar fyrir öðrum þátttakendum og Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem flutti í kjölfarið lokaávarp þingsins.
Vinnan á þinginu markar ekki lok samtalsins – afraksturinn nýtist við stefnumótun og áframhaldandi samtal um framtíð vísinda og nýsköpunar. Meðal afurða verða skilaboð ungs fólks til Vísinda- og nýsköpunarráðs ásamt samantekt á helstu spurningum, áskorunum og hugmyndum framhaldsskólanema. Skilaboðin verða lögð formlega fyrir ráðið og niðurstöðurnar nýttar við undirbúning næstu skrefa, meðal annars Vísinda- og nýsköpunarþings 2027.
Þingið tengist stefnu stjórnvalda um vísindi, tækniþróun og nýsköpun til ársins 2035 og atvinnustefnu Íslands til sama árs. Með því að tengja þessar áherslur við reynsluheim og framtíðarsýn ungs fólks gefst því tækifæri til að hafa áhrif á hvernig Ísland tekst á við áskoranir og nýtir tækifæri framtíðarinnar.