1. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kemur til Íslands

{image.Description}
Þorgerður Katrín og Marco Rubio þegar þau hittust í tengslum við fund Atlantshafsbandalagsins í Antalya í Tyrklandi í fyrra.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur þekkst boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn til Íslands og kemur til landsins í næstu viku.

„Það er mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið sem ég ítrekaði við hann í New York á dögunum. Samstarf Íslands og Bandaríkjanna stendur á traustum grunni og heimsókn hans hingað er til marks um það,“ segir Þorgerður Katrín. „Það hefur verið sérstakt áherslumál mitt í embætti utanríkisráðherra að styrkja tengsl Íslands við okkar nánustu vina- og bandalagsríki beggja vegna Atlantshafsins. Við eigum í virku samtali við Bandaríkin um sameiginleg hagsmunamál þar sem samstarf í varnarmálum, öryggi á norðurslóðum og viðskipti milli ríkjanna vega hvað þyngst. Það er tilhlökkunarefni að taka á móti utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem mun styrkja okkar góða samband enn frekar.“