2. október 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Einföldun, stytting og aukin skilvirkni: Breytingar á skipulagslögum birtar í samráðsgátt

{image.Description}

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum. Frumvarpið er hluti af stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og aðgerðum stjórnvalda í húsnæðimálum.

Markmiðið er að aðlaga skipulagslöggjöfina að breyttum tímum, bæta skilvirkni stjórnsýslu og stytta ferla þar sem við á.

„Við erum að einfalda málsmeðferð, stytta ferla, auka skilvirkni og nýta stafrænar lausnir í auknum mæli. Breytingarnar eru liður í áframhaldandi þróun skipulagslöggjafarinnar og miða að því að tryggja að hún styðji áfram við markmið um sjálfbæra þróun, vandaða skipulagsgerð og góða stjórnsýslu. Þá hef ég lagt áherslu á að finna lausn ef sveitarfélög eru ósammála um vaxtamörk og hér eru skref stigin í átt að því,“ segir Ragnar Þór.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur síðastliðin misseri átt víðtækt samráð við hagaðila um húsnæðis- og skipulagsmál, meðal annars á vinnustofum og í tengslum við stefnumótunarvinnu í málaflokknum. Sú vinna og reynsla af framkvæmd laganna hefur sýnt að þörf er á breytingunum.

Helstu atriði frumvarpsins

Skipulagsáætlanir og auglýsingar: Fyrirkomulag birtingar

Lagt er til að einfalda, skýra og samræma ákvæði skipulagslaga um birtingu upplýsinga og auglýsinga í skipulagsmálum. Í frumvarpsdrögunum er því lagt til að auglýsing um tillögu að skipulagsáætlun skuli auglýst með áberandi hætti og birt í Skipulagsgátt. Verður Skipulagsgátt þannig vettvangur fyrir formlega birtingu gagna og móttöku athugasemda og umsagna.

Skipulagsáætlanir: Einföldun málsmeðferðar

Lagt er til að einfalda ákveðna þætti í málsmeðferð við gerð skipulagsáætlana og breytinga á þeim. Meðal annars er lagt til að heimilt verði að falla frá forkynningu á svæðis- og aðalskipulagi þegar um er að ræða breytingar á slíku skipulagi, og slík kynning þá haldin samhliða auglýsingu tillögunnar. Þá er lögð til breyting á aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar að deiliskipulagsmálum. Markmiðið er að tryggja skilvirkari og fyrirsjáanlegri meðferð mála án þess að draga úr samráði, faglegum undirbúningi eða réttaröryggi.

Athugasemdafrestir og samráð skipulagsmála

Lagt er til að lágmarks athugasemdafrestur vegna breytinga á gildandi svæðis-, aðal- og deiliskipulagi verði styttur úr sex vikum í fjórar. Í frumvarpsdrögunum er bent á að lögbundnir lágmarksfrestir til að leggja fram athugasemdir við skipulagstillögur hafi verið óbreyttir þrátt fyrir að ekki þurfi lengur að taka tillit til póstsamgangna, veðurfars, aðgengis að skipulagsgögnum eða annarra þátta sem geti haft áhrif á það hvenær hægt sé að kynna sér tillögur. Nú birtist gögn í Skipulagsgátt þar sem jafnframt sé tekið á móti athugasemdum.

Svæðisskipulag: Málsmeðferð vegna breytinga

Lagt er til hvernig málsmeðferð skuli hagað varðandi breytingar á gildandi svæðisskipulagi og lögð til einfaldari málsmeðferð vegna óverulegra breytinga. Jafnframt er það lagt til að heimilt verði að fella niður svæðisskipulag að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

Í frumvarpinu er einnig það nýmæli að kveðið er á um málsmeðferð ef upp kemur ágreiningur á milli sveitarfélaga um breytingar á gildandi svæðisskipulagi. Felst í þeirri málsmeðferð meðal annars heimild til að leita eftir áliti Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um þau atriði sem ágreiningurinn hverfist um. Ef enn næst ekki sátt um framkomna beiðni um breytingu á svæðisskipulagi þá er heimilt að skjóta ágreiningnum til úrskurðar ráðherra. Ljóst er að nauðsynlegt er að hafa farveg til úrlausnar slíkra ágreiningsmála komi þau upp, svo sem varðandi vaxtamörk, meðal annars til að koma í veg fyrir að þróun landnotkunar sveitarfélaga standi í stað.

Fyrsta skref í endurskoðun löggjafarinnar í heild sinni

Frestur til að gera athugasemdir við frumvarpsdrögin er til 16. október.

Frumvarpið er fyrsta skref í endurskoðun skipulagslöggjafarinnar. Í framhaldinu hyggst félags- og húsnæðismálaráðherra ráðast í heildarendurskoðun á skipulagslögum í samráði við hagaðila og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.