2. október 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Fyrsta skóflustungan tekin til endurheimtar votlendis á ríkisjörðum

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skóga, við upphaf átaks vegna endurheimtar votlendis á ríkisjörðum.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók í dag fyrstu skóflustunguna vegna átaks ríkisstjórnarinnar við endurheimt votlendis á ríkisjörðum. Hafist var handa við að loka framræsluskurðum á ríkisjörðinni að Sogni í Ölfusi. Í haust verða alls 225 hektarar votlendis endurheimtir á fimm ríkisjörðum, sem jafngildir 315 fótboltavöllum, og um 23 kílómetrum af framræsluskurðum lokað. Samkvæmt áætlunum sem liggja fyrir mun vera endurheimt stærra svæði raskaðs votlendis á þessu ári og því næsta en hefur verið endurheimt á síðustu 30 árum.

Endurheimt votlendis er meðal forgangsverkefna ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem kynnt voru í fyrra. Síðan þá hefur framkvæmdaundirbúningur staðið yfir með kortlagningu, mælingum og í kjölfarið samráði við sveitarfélög og landeigendur nærliggjandi jarða auk leyfisveitingaferla. Í dag hófust framkvæmdir að Sogni, en þar verða um 25 hektarar votlendis endurheimtir og um fjórum kílómetrum af framræsluskurðum lokað.

Endurheimt votlendis dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi og getur jafnframt bætt vatnsmiðlun, aukið seiglu vistkerfa gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga og stutt við líffræðilega fjölbreytni.

 

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Þegar ég tók við embætti sagðist ég ætla að rjúfa kyrrstöðuna í endurheimt votlendis og í dag hefjast framkvæmdir. Við byrjum á því að axla ábyrgð á landi í eigu ríkisins en jafnframt komum við upp sterkari hvötum fyrir bændur, aðra landeigendur og félagasamtök til þess að láta verkin tala. Endurheimt votlendis og vistkerfa er hagkvæm loftslagsaðgerð en líka náttúruverndarmál og styður við líffræðilega fjölbreytni. Hún snýst ekki bara um CO2-ígildi heldur líka fuglana okkar og búsvæði þeirra. Þar sem eru skurðir í dag munum við sjá mýri og heyra fuglasöng eftir nokkur ár.“

Endurheimt votlendis er ein þeirra aðgerða sem eiga að stuðla að markmiði Íslands um árlegan 400-500 þúsund tonna CO2-íg. samdrátt í losun frá landi árið 2035, miðað við árið 2025. Með nýju landsframlagi Íslands gagnvart Parísarsamningnum sem kynnt var í fyrra setti Ísland í fyrsta skipti formlegt markmið um samdrátt í losun frá landi.

Samhliða endurheimtinni er unnið að því að greina óröskuð og lítt röskuð votlendissvæði á ríkisjörðum með það að markmiði að styrkja vernd þeirra. Þannig eiga vernd og endurheimt vistkerfa að fara hönd í hönd. Verkefnið styður jafnframt við stefnu og markmið stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni þar sem stefnt er að því að 30% raskaðra vistkerfa á landi, í ferskvatni, við strendur og í hafi verði undir virkri endurheimt árið 2030.

Átaksverkefnið miðar einnig að því að koma í veg fyrir frekari framræsingu votlendis í leyfisleysi, einföldun regluverks í þágu náttúruverndar til endurheimtar og verndar votlendis og vistkerfa og að betrumbæta hvata- og styrkjakerfi til einkaaðila, bænda, félagasamtaka eða landeigenda sem vilja ráðast í endurheimt votlendis. Jafnframt er unnið að því að móta alþjóðlega viðurkennda aðferðafræði sem mun nýtast einkaaðilum til að framleiða vottaðar kolefniseiningar með endurheimt votlendis. Það gerir aðilum sem endurheimta votlendi til samræmis við þá staðla kleift að selja hágæða kolefniseiningar.

Framkvæmdirnar að Sogni marka upphaf fimm ára átaks stjórnvalda um vernd og endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum. Átakið er samstarfsverkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Lands og skógar og Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna. Með samstarfinu eru jarðir í eigu ríkisins nýttar markvisst til að hrinda í framkvæmd stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og stefnu stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni.

Ávarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra