Fyrstu leiðbeiningar um samræmda skráningu í félagsþjónustu komnar út
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur gefið út fyrstu leiðbeiningar um samræmda grunnskráningu í félagsþjónustu. Leiðbeiningarnar eru hluti af samstarfi ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um stafræn verkefni og gagnamál í félagsþjónustu. Þær eru ætlaðar þeim sem veita félagsþjónustu, þeim sem sjá um gerð hugbúnaðar og annarra lausna til skráningar hennar – og öðrum þeim sem tengjast lögbundinni félagsþjónustu sveitarfélaganna.
- Samræmd gögn gefa betri yfirsýn og markmiðið er að tryggja samfellda þjónustu, stuðla að betri nýtingu fjármuna og gera stefnumótun stjórnvalda markvissari.
- Ætlunin er að tryggja að sambærilegar upplýsingar séu skráðar með sama hætti óháð því hvar á landinu þjónustan er veitt.
Í júlí lögðu ráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga fram sameiginlega framtíðarsýn og aðgerðaáætlun um stafræn verkefni og gagnamál í félagsþjónustu til ársins 2028. Nýju leiðbeiningarnar eru eitt af fyrstu skrefunum í innleiðingu framtíðarsýnarinnar.
Fyrsti áfanginn nær til stuðnings- og stoðþjónustu
Leiðbeiningarnar verða byggðar upp í áföngum. Fyrsta útgáfa nær til grunnskráningar í stuðnings- og stoðþjónustu.
- Í leiðbeiningunum eru skilgreind lágmarksatriði sem ætlast er til að verði skráð við veitingu lögbundinnar félagsþjónustu, svo sem hver þjónustuveitandinn er, hvert form þjónustunnar er og hvaða verkþættir eru veittir.
- Meðal þeirra verkþátta sem eru skilgreindir eru til dæmis aðstoð við persónulegt hreinlæti, heimilisstörf, innkaup, máltíðir, lyf, félagslega virkni, hreyfingu og skipulag.
- Áhersla er lögð á að skráningin verði ekki íþyngjandi og að upplýsingar sem þegar þarf að skrá við veitingu þjónustunnar verði nýttar eins og kostur er.
Stefnt er að því að bæta fleiri lögbundnum þjónustuþáttum við í næstu útgáfum leiðbeininganna og að þær nái fyrir lok árs 2028 til allrar lögbundinnar félagsþjónustu sem fellur undir lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lög um málefni aldraðra.
Jafnframt er stefnt að því að sveitarfélög skili skilgreindum gögnum reglulega í miðlæga gagnaþjónustu og markmiðið að gögnin uppfærist sem næst rauntíma.
Í starfshópnum voru Hákon Sigurhansson, fulltrúi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins sem jafnframt var formaður, Herdís Björnsdóttir, úr félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, Styrmir Erlingsson, sviðsstjóri velferðarsviðs Mosfellsbæjar, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, María Ingibjörg Kristjánsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sævar Logi Viðarsson, tilnefndur af Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, Skúli Ingiberg Þórarinsson, sviðsstjóri velferðarsviðs Hornafjarðar, tilnefndur af Samtökum stjórnenda í velferðarþjónustu, og Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri öldrunarmála hjá Reykjavík, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Berglindi vantar á myndina hér að ofan.