2. október 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Hugmyndaveisla: Vísindi, nýsköpun og tækifæri framtíðarinnar

{image.Description}
Ráðherra sótti margvíslega viðburði síðastliðna helgi og hitti meðal annars Sigrúnu Stefánsdóttur hjá Vísindaskóla unga fólksins.

Áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn, hugmyndir ungs fólks um framtíðina og miðlun vísinda voru meðal viðfangsefna á fjölbreyttum viðburðum sem menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið kom að síðastliðna helgi.

Gervigreind og framtíð vinnumarkaðarins

Á föstudagsmorgun stóð Almannarómur ásamt ráðuneytinu fyrir opnu samtali um vinnumarkað og gervigreind með Erik Brynjólfssyni í Grósku. Erik Brynjolfsson er prófessor við Stanford-háskóla og einn þekktasti sérfræðingur heimsins í áhrifum tækni og gervigreindar á efnahag, atvinnulíf og samfélag. Hann stýrir rannsóknarstofu Stanford um stafrænt hagkerfi og hefur meðal annars rannsakað hvernig tæknin hefur áhrif á framleiðni og vinnumarkað.

Framtíðarhorfur starfa og öryggismál í gervigreind eru meðal helstu áhyggjuefna sérfræðinga og hafa verið mikið til umræðu undanfarið. Í erindi Eriks nefndi hann tvær mögulegar útkomur í þeim efnum; sé tæknin aðeins notuð til að leysa fólk af hólmi telur hann hætt við að völd og auður safnist á fáar hendur. Sé hún hins vegar notuð til að efla getu fólks í störfum styrkist staða vinnandi fólks og ávinningurinn dreifist víðar. Þannig megi nýta tæknina til að efla fólk fremur en að skipta því út.

 

„Ég tek undir með Erik um að líta á gervigreind sem verkfæri sem eykur getu okkar. Hana ætti að þróa með það að leiðarljósi að gera fólk færara, en ekki óþarft. Gervigreind getur sannarlega breytt því hvernig við vinnum en það er okkar að skilgreina verkefnin og taka ákvarðanirnar," segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra.

 
 

 
 

Ungt fólk mótar framtíð vísinda og nýsköpunar

Vísinda- og nýsköpunarþing 2026 fór einnig fram síðastliðinn föstudag þar sem áhersla var á ungt fólk. Tveimur nemendum frá hverjum framhaldsskóla landsins var boðið að taka þátt og ræða framtíð vísinda, nýsköpunar, menntunar og samfélagsins við vísindafólk, frumkvöðla og fulltrúa stjórnvalda. Vísinda- og nýsköpunarráð stóð að þinginu í samstarfi við forsætisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Fyrir hádegi sýndu sérfræðingar og frumkvöðlar með dæmum hvernig rannsóknir og þekking geta orðið að lausnum. Eftir hádegi tóku nemendurnir sjálfir við og unnu í vinnustofu að tillögum um framtíðarnám, gervigreind, lífsgæði og sjálfbærni. Í niðurstöðunum lögðu þeir áherslu á fræðslu um gervigreind, jöfn tækifæri og ábyrga notkun nýrrar tækni.

 
 
 

Háskólasetur Vestfjarða hlaut viðurkenningu

Við opnun Vísindavöku Rannís á laugardag afhenti Logi Einarsson háskólaráðherra Háskólasetri Vestfjarða viðurkenningu fyrir vísindamiðlun 2026. Catherine Chambers, forstöðukona setursins, tók við viðurkenningunni.

Háskólasetur Vestfjarða gegnir lykilhlutverki í að leiða saman aðila sem stunda rannsóknir á Vestfjörðum og víðar. Setrið stendur jafnframt fyrir öflugu alþjóðlegu samstarfi og tryggir að vísindastarfi sé miðlað til almennings á lifandi og áhugaverðan hátt, með sérstakri áherslu á börn og ungmenni. Bein og lifandi vísindamiðlun til almennings er eitt af markmiðum Vísindavökunnar og því hlaut Háskólasetur Vestfjarða viðurkenningu Rannís fyrir vísindamiðlun 2026.

Vísindavaka var haldin í Laugardagshöll þar sem gestir gátu kynnt sér vísindin á lifandi hátt og átt í beinu samtali við rannsakendur og vísindafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum í íslensku vísindasamfélagi - og einstaka bangsa.

 
 

Hönnunarþing á Húsavík

Hönnunarþing fór fram á Húsavík dagana 25.–26. september. Þema þingsins í ár var orka í víðum skilningi og á dagskránni mættust hönnun, nýsköpun, vísindi og atvinnulíf. Dagskráin var fjölbreytt og beindist meðal annars að auðlindanýtingu, loftslagslausnum, nýrri tækni, hönnun og framtíðarsýn fyrir samfélög og atvinnulíf. Orkustigið á Húsavík var hátt þessa daga og bæði þátttakendur og aðstandendur ánægðir með viðburðinn.

Ráðuneytið kynnti þar áhersluverkefnið Setjum kraft í straumana (STREAM) sem miðar að því að tengja vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði betur við læsi, sköpun, hönnun og menningu. Markmiðið er að efla samstarf þeirra sem þegar sinna fræðslu og nýsköpun um land allt og skapa fleiri leiðir fyrir ungt fólk til að kynnast þessum sviðum, óháð búsetu. Kjarninn í verkefninu er að nýta betur það sem þegar er til staðar og skapa skýrari tengingar milli háskóla, rannsóknarstofnana, menningarstofnana, þekkingarsetra, Fab Lab-smiðja, fjölmiðla og nýsköpunarsamfélagsins. Með bættri yfirsýn, aðgengi og samhæfingu geta verkefni náð lengra, nýjar hugmyndir fengið betri farveg og fleiri tekið þátt – óháð búsetu. Hlutverk ráðuneytisins í verkefninu er að halda utan um heildina, samhæfa og skapa landsramma, á meðan faglegir aðilar og innviðir hanna, framkvæma, miðla og þróa.