2. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Varnarmálaráðherrar JEF-ríkjanna ræddu þéttara varnarsamstarf

{image.Description}
Frá vinstri: Mariliis Gross, skrifstofustjóri hjá varnarmálaráðuneyti Eistlands, Janne Kuusela, ráðuneytisstjóri varnarmálaráðuneytis Finnlands, Pål Jonson, starfandi varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Jeppe Bruus, varnarmálaráðherra Danmerkur, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Wes Streeting, varnarmálaráðherra Bretlands, Raivis Melnis, varnarmálaráðherra Lettlands, Karolis Aleksa, varavarnarmálaráðhera Litáens, Derk Boswikj, ráðherra innkaupastjórna vopna og herafla Hollands, og Tore O. Sandvik, varnarmálaráðherra Noregs.

Þróun öryggismála í Norður- Evrópu, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, viðbrögð við fjölþáttaógnum og aukið samstarf JEF-ríkja voru meðal helstu umræðuefna á varnarmálaráðherrafundi Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force - JEF) sem fram fór á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var gestgjafi fundarins.

Á fundinum fóru ráðherrarnir yfir stöðu öryggismála í Norður-Evrópu og ræddu hvernig styrkja megi sameiginlegan viðbúnað og varnir á svæðinu. Einnig var fjallað um æfingar, viðbragðsgetu, þróun varnarsamstarfs og aukna samvinnu á sviði varnariðnaðar. Auk Bretlands, sem leiðir samstarfið, eiga Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin og Holland aðild að JEF. Þá var varnarmálaráðherra Kanada, David J. McGuinty, sérstakur gestur á fundinum.

„Við erum að treysta böndin milli okkar með áherslu á að geta mætt breyttu öryggisástandi ekki síst á Norður-Atlantshafi, norðurslóðum og í Eystrasaltinu. Samstarfið er að styrkjast, ekki síst hvað varðar eftirlit og aðgerðir gegn fjölþáttaógnum, og allt sem við gerum eflir og styrkir viðbúnað Atlantshafsbandalagsins á þessu svæði. Það var ánægjulegt að fá tækifæri til að kynna þeim aðstæður á Íslandi,“ segir Þorgerður Katrín.

Varnarmálaráðherra Úkraínu ávarpaði fundinn í gegnum fjarfundarbúnað. JEF-ríkin hafa verið í fararbroddi í stuðningi við varnarbaráttu Úkraínu gegn árásarstríði Rússlands og var áframhaldandi stuðningur við Úkraínu eitt af meginviðfangsefnum fundarins. Ráðherrarnir ræddu jafnframt leiðir til að efla samstarf JEF og Úkraínu enn frekar með það að markmiði að styrkja sameiginlegt öryggi, meðal annars með þátttöku Úkraínu í JEF-æfingunni Lion Protector.

Einnig var fjallað um vaxandi umsvif Rússa og öryggisáskoranir á norðurslóðum, á Norður Atlantshafi og í Eystrasaltinu, auk viðbragðs við stigvaxandi fjölþáttaógnum sem Evrópuríki standa frammi fyrir. Samhliða fundinum átti Þorgerður Katrín tvíhliða fundi með varnarmálaráðherrum Bretlands, Kanada og Noregs þar sem meðal annars var rætt um áframhaldandi stuðning við Úkraínu og sameiginlegar öryggis- og varnaráskoranir.

Ísland varð aðili að JEF árið 2021. Markmið samstarfsins er að efla hagnýta varnarsamvinnu milli ríkja í Norður-Evrópu, styrkja sameiginlegar varnir Atlantshafsbandalagsins og auka varnargetu og viðnámsþol á svæðinu.

Þá fer árlegur leiðtogafundur JEF-ríkjanna fram á Íslandi næsta vor.

Hægt er að nálgast sameiginlega yfirlýsingu fundar varnarmálaráðherra JEF-ríkjanna hér.