5. október 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mælti fyrir frumvarpi sem styrkir stöðu leigjenda

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir breytingum á húsaleigulögum sem ætlað er að auka húsnæðisöryggi, minnka vægi verðtryggingar og skapa leigjendum aukinn fyrirsjáanleika um þróun húsnæðiskostnaðar.

„Frumvarpið er lagt fram á grundvelli stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að styrkja stöðu leigjenda og setja heimilin í forgang. Það er jafnframt liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir því að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði haldi,“ sagði Ragnar Þór í framsöguræðu sinni í þinginu.

Ráðherra undirstrikaði að með breytingunum sem frumvarpið fæli í sér væri í raun verið að lögfesta trausta og vel útfærða leigubremsu á íslenskum húsnæðismarkaði – sanngjarna og málefnalega bremsu sem stöðvaði sjálfvirkar mánaðarhækkanir og veitti leigjendum það öryggi og fyrirsjáanleika sem þeir ættu rétt á.

Bremsan verndaði heimilin fyrir stjórnlausum hækkunum og stöðugu óöryggi og með frumvarpinu væri tekið á brýnum vanda á leigumarkaði af festu og ábyrgð.

Hverju er lagt til að breyta?

Margþættar reglubundnar hækkanir verði bannaðar

Lagt er til að settur verði skýr rammi um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð á samningstíma. Aðeins verði heimilt að semja um slíkar hækkanir í upphafi við gerð leigusamnings og að aðilar verði að velja eitt af þremur viðmiðum:

  • Breytingu til samræmis við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar.
  • Fyrir fram umsamið fast hlutfall af leigufjárhæð.
  • Fyrir fram umsamda fasta fjárhæð.

Með þessu er sérstaklega girt fyrir það að samningsaðilar geti samið um margþættar eða samsettar hækkanir, eins og að hækka leigu bæði um fasta fjárhæð og vísitölu á sama tíma.

Hámarksþak verði sett á reglubundna hækkun leigufjárhæðar

Lagt er til að sett verði hámarksþak á reglubundnar hækkanir leigufjárhæðar.

  • Í því felst að breytingar um fast hlutfall eða fasta fjárhæð geti aldrei leitt til meiri hækkunar en sem nemur breytingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar á sama tímabili.
  • Komi til þess að umsamin hækkun fari fram úr vísitöluhækkun skal leigan því miðast við vísitöluna.

Ráðherra benti í þinginu á að með þessu væri komið í veg fyrir óhóflegar, bersýnilega ósanngjarnar hækkanir á leiguverði.

Mánaðarlegar vísitöluhækkanir á leigu verði bannaðar

Lagt er til að lögfesta þá grundvallarreglu að 12 mánuðir skuli að lágmarki líða á milli reglubundinna breytinga á leigufjárhæð, talið frá gildistöku samnings eða síðustu breytingu.

  • Mánaðarlegar vísitöluhækkanir á leigu verða þar með alfarið óheimilar.
  • Leigufjárhæð mun að hámarki geta tekið breytingum einu sinni á ári.

Ráðherra undirstrikaði að þetta myndi gjörbylta fyrirsjáanleika leigjenda um mánaðarlegan húsnæðiskostnað sinn. Gögn úr leiguskrá HMS sýndu að um 63,5% allra leigusamninga um íbúðarhúsnæði væru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs.

„Þar af eru heil 94,5% þeirra samninga með mánaðarlegri vísitölubindingu. Þetta þýðir á mannamáli að langflestir leigjendur með verðtryggða samninga standa frammi fyrir því að húsaleigan hækkar í hverjum einasta mánuði í takt við verðbólguna,“ sagði Ragnar Þór á Alþingi. Þessu væri nú verið að breyta.

Öllum heimilum á leigumarkaði verði tryggð sama réttarvernd húsaleigulaga

Lagt er til að öllum heimilum á leigumarkaði verði tryggð sama réttavernd húsaleigulaga. Það felur meðal annars í sér að áfangaheimilum og námsmannafélögum verður framvegis óheimilt að semja um lakari rétt leigjenda varðandi ákvörðun leigufjárhæðar og breytingar á henni en þeim er tryggður í húsaleigulögum.

Upplýsingar verði birtar og reiknivél komið í gagnið

Lagt er til að auka gagnsæi á leigumarkaði um markaðsleigu og breytingar á leigufjárhæð. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun verði falið að birta upplýsingar úr leiguskrá um markaðsleigu eftir staðsetningu, stærð, aldri og gerð húsnæðis.

Þá er lagt til að stofnunin haldi úti reiknivél til að auðvelda aðilum útreikning á lögmætum leigubreytingum. Jafnframt verði lögfest að skrá verði lagagrundvöll leigubreytinga í leiguskránna.

Lögin taki gildi næsta sumar gagnvart nýjum samningum

Lagt er til að lögin taki gildi 1. júlí 2027 gagnvart öllum leigusamningum sem gerðir eru frá og með þeim degi.

Gagnvart eldri samningum um íbúðarhúsnæði (og annað húsnæði sem leigt er til íbúðar), sem enn verði í gildi 1. júlí 2028, taki hið nýja regluverk gildi á þeim degi.