6. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið
Fréttamannafundur Þorgerðar Katrínar og Rubio
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, áttu í morgun tvíhliða fund í Höfða en Rubio kom til landsins í gær.
Að þeim fundi loknum heldur Rubio í Safnahúsið við Hverfisgötu til fundar með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og situr utanríkisráðherra einnig þann fund.
Tvíhliða samband Íslands og Bandaríkjanna er til umræðu fundunum, sem og alþjóðamál. Að loknum fundinum í Safnahúsi verður haldinn fréttamannafundur þar sem Þorgerður Katrín og Marco Rubio flytja stutt ávörp og sitja fyrir svörum.
Hægt verður að fylgjast með fréttamannafundinum hér fyrir neðan og er gert ráð fyrir að hann hefjist um klukkan 10:25.