Leiðtogar Grænlands og Færeyja funda með forsætisráðherra á Íslandi
Ríkisstjórnaroddvitar vestnorrænu landanna þriggja, Íslands, Grænlands og Færeyja, munu funda á Íslandi miðvikudaginn 7. október í boði Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Jens Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, og Beinir Johannesen, lögmaður Færeyja, munu eiga samráðsfund með forsætisráðherra, auk þess sem þeir munu kynna sér aðstæður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og eiga fund með alþjóðlegum fjárfestum sem einblínt hafa á tækifæri á vestnorræna svæðinu og Norðurslóðum.
„Það er afar ánægjulegt að geta tekið á móti fulltrúum okkar næstu nágrannaþjóða og rætt við þá um sameiginlega hagsmuni okkar og sérstöðu hér í Norður-Atlantshafi og á Norðurslóðum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
„Vestnorræna svæðið sem löndin okkar tilheyra hefur verið fyrirferðarmikið í umræðu um alþjóðamál á undanförnum misserum. Við sem hér búum förum ekki varhluta af þeim kerfislægu öryggisáskorunum sem ríkja á Norður-Atlantshafi og tökum ábyrgð okkar þar alvarlega. Það er mikilvægt að við eigum samráð um stöðu þessara mála - og ekki síður að við ræðum þau miklu tækifæri sem svæðið okkar hefur upp á að bjóða,” segir forsætisráðherra.
Þetta er í fyrsta sinn sem ríkisstjórnaroddvitar vestnorrænu landanna hittast gagngert í einu landanna til að eiga samráð um sameiginleg hagsmunamál. Þá er þetta enn fremur fyrsta heimsókn bæði leiðtoga Grænlands og Færeyja til Íslands frá því að þeir tóku við embætti. Fundurinn er haldinn í kjölfar fyrstu tvíhliða heimsókna forsætisráðherra í embætti sem voru til Þórshafnar í maí og Nuuk í október á síðasta ári.