Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026
Íslenska æskulýðsrannsóknin (ÍÆ) var lögð fyrir nemendur í 4.–10. bekk í grunnskólum landsins vorið 2026. Nemendur sem tóku þátt voru alls 23.881 úr 153 grunnskólum. Heildarsvarhlutfall var 71,7% og svarhlutfall innan þátttökuskóla 82,4%. Almennt breytast mælingar ÍÆ ekki mikið milli ára en þar sem þær eru tíðar má oft draga traustar ályktanir um í hvaða átt þær eru að þróast.
Niðurstöður ársins 2026 sýna jákvæða þróun á ýmsum sviðum. Fleiri nemendum líður vel í skólanum, lífsánægja hefur aukist og færri upplifa tíða andlega vanlíðan. Þá hefur rafrettunotkun minnkað undanfarin ár og dregið hefur úr notkun nikótínpúða, einkum meðal nemenda í 10. bekk. Áfengisneysla meðal nemenda í 9. og 10. bekk hefur einnig dregist saman undanfarin ár og breytist lítið á milli 2025 og 2026. Á sama tíma eru nokkur atriði sem ganga gegn þessari þróun, m.a. aukið einelti á meðal yngri nemenda, merki um aukinn einmanaleika meðal eldri nemenda og mögulegur viðsnúningur í sígarettureykingum og kannabisnotkun meðal nemenda í 10. bekk. Sú þróun virðist einkum stafa af aukinni notkun meðal drengja.
Viðhorf nemenda til skólans hafa batnað undanfarin ár. Hlutfall þeirra sem líður vel í kennslustundum hækkaði úr 86% árið 2024 í 89% árið 2026 og nær hækkunin til allra árganga. Sömuleiðis líkar 85% vel í skólanum. Fleiri nemendur upplifa jafnframt að tekið sé mark á hugmyndum þeirra og að þeir geti leitað til fullorðins aðila í skólanum. Hlutfall nemenda sem eru oft þreytt í skólanum lækkaði úr 36% árið 2023 í 30% árið 2026 og færri segjast hafa skrópað.
Líðan þróast í jákvæða átt en mikill kynjamunur er áfram til staðar. Andleg líðan og lífsánægja nemenda í 6.–10. bekk þróast í jákvæða átt. Árið 2026 meta 62% nemenda líf sitt gott samanborið við 57% árið 2023. Þá lækkaði hlutfall þeirra sem upplifa tíða andlega vanlíðan úr 37% í 32%. Kynjamunur er þó áfram mikill og stúlkur meta bæði lífsánægju og andlega líðan sína verri en drengir. Þannig segist helmingur stúlkna í 10. bekk finna fyrir að minnsta kosti tveimur einkennum andlegrar vanlíðanar, svo sem kvíða, depurð, pirringi eða svefnerfiðleikum, oftar en einu sinni í viku. Þá virðist heildarhlutfall sjálfsskaða meðal nemenda í 10. bekk vera á hægri niðurleið en mælist þó enn um 15% og ekki kemur fram lækkun meðal stúlkna.
Sterk félagsleg tengsl – en merki um aukinn einmanaleika meðal eldri nemenda. Langflestir nemendur eiga góða vini. Meðal nemenda í 6.–10. bekk segjast 98% eiga einn eða fleiri góða vini og hlutfallið er 99% meðal nemenda í 4. og 5. bekk. Árið 2026 segjast þó 11% nemenda í 6.–10. bekk vera oft einmana. Einmanaleiki hafði farið minnkandi frá árinu 2022 en sú þróun virðist hafa snúist við og frá árinu 2024 eru merki um aukinn einmanaleika hjá nemendum í 8.-10. bekk, einkum hjá stúlkum (stúlkur 14,7% → 17,1; drengir 7,3% → 8,2).
Einelti eykst meðal yngri nemenda en aðrir vísar um ofbeldi og öryggi þróast flestir í jákvæða átt. Einelti er sá þáttur sem þróast hefur hvað óhagstæðast. Einelti hefur frá 2023 aukist á hverju ári meðal nemenda í 4. og 5. bekk. Meðal nemenda í 4. og 5. bekk jókst hlutfall þeirra sem segjast hafa orðið fyrir einelti úr 18% árið 2023 í 22% árið 2026. Sambærileg merki sjást í 6. og 7. bekk og vísbendingar eru um svipaða þróun á unglingastigi. Á sama tíma þróast flestir aðrir vísar um ofbeldi og öryggi í jákvæða átt. Meðal nemenda í 8.–10. bekk hefur dregið úr heimilisofbeldi, kynferðislegu ofbeldi og áreiti, slagsmálum og líkamsárásum. Flestir nemendur upplifa jafnframt mikið öryggi heima og í nærumhverfi sínu.
Ekki merki um almenna aukningu í vímuefnaneyslu – en fylgjast þarf með þróun sígarettureykinga og kannabisnotkunar. Gögn ÍÆ benda ekki til almennrar aukningar í vímuefnaneyslu meðal nemenda í 9. og 10. bekk. Frá 2022 hefur að jafnaði dregið úr notkun rafretta, nikótínpúða og áfengis. Í 10. bekk lækkaði hlutfall nemenda sem höfðu drukkið áfengi síðustu 30 daga úr 13,4% árið 2022 í 9,1% árið 2026 og hlutfall þeirra sem höfðu orðið drukkin um ævina úr 13,6% í 8,8%. Rafrettunotkun lækkaði á sama tíma úr 14% í 10%. Önnur þróun sést þó í sígarettureykingum og kannabisnotkun meðal nemenda í 10.bekk, þar sem merki eru um viðsnúning undanfarin tvö ár. Sú þróun virðist einkum skýrast af aukinni notkun meðal drengja. Sígarettureykingar á meðal nemenda í 10. bekk jukust úr 2,3% árið 2024 í 4,6% árið 2026 og hlutfall nemenda sem hafa prófað kannabis úr 5,7% í 6,5%.
Mikill stuðningur fjölskyldunnar. Flestir nemendur upplifa góðan stuðning heima. Níu af hverjum tíu nemendum í 6.–10. bekk telja sig njóta góðs stuðnings fjölskyldunnar og 84% geta fengið aðstoð við heimanám, samanborið við 80% árið 2023. Vísbendingar eru þó um að lækkandi hlutfall eldri nemenda telji sig eiga auðvelt með að tala við að minnsta kosti annað foreldri. Því er vert að fylgjast með næstu mælingum á þessum þætti.
Heildarniðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 sýna að þróun fjölmargra mælikvarða um líðan nemenda,upplifun þeirra af skólanum, öryggi og áhættuhegðun barna er hagstæð. Niðurstöðurnar undirstrika þó að áskoranir eru áfram til staðar. Sérstaklega þarf að fylgjast með auknu einelti og einmanaleika og mikilli vanlíðan meðal hluta nemenda og þróun hennar. Sömuleiðis er mikilvægt að fylgjast áfram með vímuefnaneyslu meðal elstu nemenda grunnskóla. Þá er brýnt að minna á mikilvægi þess að foreldrar ræði við börn á unglingsaldri um áskoranir og líðan og veiti þeim stuðning.