6. október 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Styrkir til félagasamtaka – opið fyrir umsóknir

{image.Description}
Ljósmynd: Hari

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum íslenskra félagasamtaka um styrki til verkefna og starfsemi sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins, sbr. forsetaúrskurð nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Að þessu sinni verður lögð áhersla á að styrkja verkefni sem stuðla að virkni og þátttöku í samfélaginu.

Verkefnastyrkir og rekstrarstyrkir

Á vef Stjórnarráðsins má finna reglur um úthlutun styrkja sem félags- og húsnæðismálaráðherra veitir samkvæmt safnliðum fjárlaga hverju sinni.

Hægt er að sækja um tvenns konar styrki:

a) Verkefnastyrkir

Verkefnastyrkir eru veittir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum og hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna sem felast í því að:

  • Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi.
  • Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna.
  • Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf.

Verkefnastyrkir eru alla jafna ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Í þeim tilvikum þar sem verktími er lengur en eitt ár er heimilt að veita árlegan styrk til allt að þriggja ára, með fyrirvara um fjárveitingar á fjárlögum hverju sinni. Ekki eru veittir styrkir til sömu verkefna og hljóta styrk á fjárlögum eða verkefna sem falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga við það.

b) Rekstrarstyrkir

Styrkir eru veittir til reksturs félagasamtaka sem hafa verið starfandi í að lágmarki þrjú ár. Rekstrarstyrkir geta verið veittir til tveggja ára í senn.

Umsóknarfrestur til 29. okt

Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 29. október 2026 kl. 13.00.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfrestur er liðinn verður ekki tekin til umfjöllunar.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins: http://minarsidur.stjr.is

Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum. Undir félags- og húsnæðismálaráðuneytinu eru umsóknareyðublöðin:

  • Umsókn um styrk af safnliðum fjárlaga 2027 vegna verkefna á sviði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
  • Umsókn um styrk af safnliðum fjárlaga 2027 til reksturs félagasamtaka sem starfa á málefnasviði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.