Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Áform um innleiðingu EES-reglna um tilflutning úrgangs til kynningar í Samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda áform um lagasetningu til innleiðingar á EES-reglum sem taka til flutnings úrgangs á milli landa.
Áformin snúa að því að gera breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, sem nauðsynlegar eru til að innleiða í landsrétt reglugerð (ESB) 2024/1157 um tilflutning úrgangs. Reglugerðin leysir af hólmi eldri reglugerð ESB um sama efni og tók hún að mestu leyti gildi í aðildarríkjum ESB 21. maí 2026. Reglugerðin tekur að fullu gildi 21. maí 2027 og um leið fellur eldri reglugerð, sem innleidd er hér á landi, alfarið úr gildi innan ESB.
Með lagasetningunni er því ætlunin að lögfesta sömu reglur um flutning úrgangs til og frá Íslandi og gilda í öðrum ríkjum á EES-svæðinu. Mikilvægt er að íslenskir aðilar sem flytja úrgang á milli landa njóti fulls jafnræðis á við sambærilega aðila í öðrum ríkjum á svæðinu, auk þess að tryggja hnökralausan útflutning á úrgangi sem ekki er mögulegt að meðhöndla hér á landi.
Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur vegna áformanna er til 21. október nk.
Áform um innleiðingu EES-reglna um tilflutning úrgangs