Góðir fundir með utanríkisráðherra Bandaríkjanna
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, áttu í dag fund í Höfða í Reykjavík en Rubio kom til landsins í gær í boði utanríkisráðherra. Tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna voru í brennidepli í heimsókn Rubios, bæði á sviði varna og öryggismála sem og efnahagssamvinnu en Bandaríkin eru stærsta einstaka viðskiptaland Íslands. Norðurslóðir í víðu samhengi og alþjóðamál bar einnig á góma í samtölum ráðherranna.
Þorgerður Katrín og Rubio utanríkisráðherra fengu leiðsögn um Höfða áður en fundur þeirra hófst í morgun en um þessar mundir eru fjörutíu ár síðan leiðtogafundur Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta og Míkhaíls Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, fór fram á sama stað. Rubio hitti einnig Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og fór sá fundur fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu og sat Þorgerður Katrín þann fund einnig. Í kjölfarið var svo haldinn fréttamannafundur með þeim Þorgerði Katrínu og Rubio.
„Samtöl mín og okkar Kristrúnar [forsætisráðherra] við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, voru bæði góð og gagnleg og augljóst að samband Íslands og Bandaríkjanna stendur styrkum fótum,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
„Ísland og Bandaríkin eru vinaþjóðir og samstarfsríki til margra áratuga. Varnar- og öryggismál voru mjög til umræðu en báðar eru þjóðirnar stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu, auk þess sem við deilum áhuga og hagsmunum á norðurslóðum. Viðskipti landanna og efnahagssamvinna voru einnig rædd og ríkur vilji til staðar hjá Rubio til þess að efla það samstarf, horfa til gagnkvæmra fjárfestinga og leita leiða til að hagnýta hugvit og krafta íslenskra fyrirtækja, s.s. á sviði jarðhita, svo fátt eitt sé nefnt. Við höfum einnig um nokkurt skeið sótt á um að gera samning um gagnkvæmt eftirlit með framleiðslu lyfja sem nú verður farið í. Rubio lét falla ýmis falleg orð um Ísland og Íslendinga og sagðist vonast til að við gætum haldið áfram að rækta okkar góðu tengsl. Ég deili þeim vilja hans.“
Rubio heimsótti sendiráð Bandaríkjanna eftir að fundum hans með íslenskum stjórnvöldum lauk og í kjölfarið hélt hann til Keflavíkur til að skoða aðstæður á öryggissvæðinu þar. Hann flaug svo af landi brott um miðjan dag.