7. október 2026 /
Innviðaráðuneytið

Jöfnunarsjóður: Almenn jöfnunarframlög 2026 hækkuð um rúma 1,4 milljarða króna

{image.Description}

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um endurskoðaða úthlutun almennra jöfnunarframlaga fyrir árið 2026.

Með hliðsjón af sterkri eiginfjárstöðu Jöfnunarsjóðs í lok árs 2025 hefur verið ákveðið að hækka heildarfjárhæð almennra jöfnunarframlaga fyrir árið 2026 um 1.425 m.kr. Upphæðin verður greidd með eingreiðslu fimmtudaginn 8. október.

Heildarfjárhæð almennra jöfnunarframlaga á þessu ári nemur því 29,6 milljörðum króna. Af þeirri fjárhæð reiknast 1% í höfuðstaðarálag, eða 296 m.kr. en 29.304 m.kr. er úthlutað samkvæmt 6.-9. gr. laga um Jöfnunarsjóð.