8. október 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar

{image.Description}

Umhverfis- og orkustofnun kallar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026. Tilgangur Bláskeljarinnar er að gefa lausnum sem stuðla að hringrásarhagkerfi verðskuldaða athygli. Verðlaunin verða afhent af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Í ár verður Bláskelin í fyrsta sinn veitt fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Áður var hún veitt fyrir lausnir sem drógu úr plastnotkun, en nú er leitað að bæði nýjum og rótgrónum lausnum sem halda verðmætum í hringrás – þvert á efnisflokka og geira. Sérstök áhersla er lögð á að verðlauna lausnir sem sýna hvernig hringrásarhagkerfið getur skapað raunveruleg tækifæri til verðmætasköpunar og betra samfélags um leið og dregið er úr auðlindanotkun, úrgangi og umhverfisáhrifum.

Sérstök dómnefndm skipuð fulltrúum úr heimi hönnunar, nýsköpunar, atvinnulífs, félagasamtaka og hins opinbera, velur viðurkenningarhafa.

Við val á verðlaunahafa er horft til eftirfarandi þátta:

  • Tengsla við hringrásarhagkerfið – hvernig lausnin stuðlar að betri nýtingu auðlinda með auknum líftíma, minni sóun og aukinni hringrás.
  • Nýsköpunargildis – hversu nýstárleg og framsækin lausnin er í íslensku samhengi.
  • Raunhæfni – hvort lausnin svari raunverulegri þörf, sé framkvæmanleg og hafi möguleika á að ná útbreiðslu.
  • Áhrifa – hvaða jákvæðu áhrif lausnin hefur á umhverfi, samfélag og auðlindanýtingu.

 

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum, sem geta jafnt verið vegna nýrra og framsækinna lausna og rótgróinna verkefna sem hafa þegar sýnt árangur. Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Umhverfis- og orkustofnun tekur við tilnefningum út 20. október 2026.

Frétt Umhverfis- og orkustofnunar

Hlekkur á tilnefningar