Reglugerð gefin út um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja. Reglugerðin tekur til vanhæfismarka vegna neyslu ávísunarskyldra lyfja sem innihalda nánar tilgreind efni, þegar þeirra er neytt á grundvelli ávísunar læknis og í samræmi við fyrirmæli hans.
Samkvæmt reglugerðinni er styrkleiki efna í blóði umreiknaður svo að hann samsvari magni vínanda í blóði. Miðað er við styrkleika efna sem samsvarar 0,5‰ af vínanda í blóði.
„Þetta er mikilvægt fyrsta skref til að mæla fyrir um það með hlutlægum hætti hvenær ökumenn sem er á lyfseðilsskyldum lyfjum teljast ekki geta stjórnað ökutæki örugglega,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
„Með reglugerðinni eru sett hlutlæg viðmið um það hvenær ökumaður sem tekur ávísunarskylt lyf samkvæmt fyrirmælum læknis telst óhæfur til að stjórna ökutæki. Þetta er mikilvægt fyrsta skref í átt að auknu réttaröryggi fyrir stóran hóp fólks sem hefur búið við algjöra óvissu um stöðu sína frá gildistöku umferðarlaga árið 2020. Mér er ljóst að hagsmunaaðilar hefðu kosið að gengið yrði lengra í einstökum atriðum. Reglugerðin tekur nú gildi, en ráðuneytið mun áfram hafa málið til skoðunar og meta hvort tilefni sé til frekari breytinga. Ég hef fullan vilja til að koma frekar til móts við þennan hóp, að því marki sem umferðaröryggi leyfir,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Ökumönnum ber eftir sem áður ætíð að gæta að eigin ökuhæfni, sbr. 2. mgr. 48. gr. umferðarlaga og að þeir séu færir um að stjórna viðkomandi ökutæki örugglega.
Norsk fyrirmynd
Reglugerðin var samin með hliðsjón af niðurstöðum rannsókna sem Norðmenn réðust í að taka saman og var horft til framsetningar vanhæfismarka í Noregi. Þar hafa vanhæfismörk einnig verið skilgreind með reglugerð með ágætum árangri.
Reglugerðin er sett með stoð í 6. mgr. 48. gr. gildandi umferðarlaga og tók gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.