Norðurlöndin sameina krafta sína til að efla samkeppnishæfni
Samkeppnishæfni Norðurlanda var meðal helstu umræðuefna á fundum og ráðstefnu sem Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, sótti í Kaupmannahöfn í síðustu viku.
Ráðherra sótti fund norrænna ráðherra atvinnu- og nýsköpunarmála (MR-N) og fund samstarfsráðherra Norðurlanda (MR-SAM). Á fundunum var kynnt skýrsla um samkeppnishæfni Norðurlanda, sem löndin höfðu óskað eftir, og samþykkt sameiginleg yfirlýsing um að efla samkeppnishæfni Norðurlanda og styrkja samstarf um nokkrar af mikilvægustu framtíðaráskorunum svæðisins.
Í umræðum um skýrsluna lagði ráðherra áherslu á að þótt mikilvægt væri að Norðurlöndin stæðu sterk í alþjóðlegri samkeppni mætti ekki missa sjónar á þeim gildum og styrkleikum sem einkenna norrænu samfélögin. Þar nefndi hann meðal annars jafnrétti, sem væri ekki aðeins grundvallargildi norrænna samfélaga heldur jafnframt einn af helstu styrkleikum þeirra og mikilvægur þáttur í samkeppnishæfni Norðurlanda.
Ráðherra sótti einnig ráðstefnu um samkeppnishæfni frá norrænu sjónarhorni og tók þar meðal annars þátt í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni „Er aukið norrænt samstarf lykillinn að samkeppnishæfni til framtíðar?“
Í máli sínu lagði ráðherra áherslu á að norræna samfélagslíkanið væri áfram einn helsti styrkleiki Norðurlandanna. Jafnframt benti hann á að ekki væri hægt að ganga að því sem vísu að þeir styrkleikar sem Norðurlöndin búa yfir í dag tryggðu þeim sömu stöðu í framtíðinni.
Verkefnið fram undan væri því að nýta þessa styrkleika til framtíðarvaxtar með því að beina meira fjármagni og þekkingu að framleiðniaukningu, auðvelda fyrirtækjum að vaxa bæði innan Norðurlandanna og á alþjóðlegum mörkuðum og nýta betur mannauð og orkuforskot svæðisins. Um leið þyrfti að efla efnahagslegt viðnámsþol til að tryggja áframhaldandi samkeppnishæfni norræna samfélagslíkansins.
Á fundi samstarfsráðherra Norðurlanda var jafnframt fjallað um endurskoðun Helsingforssamningsins og ýmis innri málefni norræna ríkisstjórnarsamstarfsins, þar á meðal áframhaldandi nútímavæðingu þess og fjárhagsáætlunarmál. Á fundi ráðherranefndarinnar um atvinnu- og nýsköpunarmál var einnig rætt um skammtatækni og hvaða áhrif hún gæti haft á atvinnulíf framtíðarinnar.
Um Norrænu ráðherranefndina
Danmörk og Færeyjar gegna formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2026 undir yfirskriftinni Norðurlönd 2026 – Traust tengsl í hverfulum heimi.
Samstarfsráðherrar Norðurlanda fara í umboði forsætisráðherra landanna með samræmingu norræns ríkisstjórnarsamstarfs á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Starfið fer fram í tólf ráðherranefndum auk fjölmargra embættismannanefnda og starfshópa.
Markmið samstarfsins er að þróa sameiginlegar lausnir á þeim sviðum þar sem Norðurlöndin ná betri árangri með samstilltu átaki. Starfið byggist á framtíðarsýninni Framtíðarsýn okkar 2030, sem hefur það að markmiði að Norðurlöndin verði samþættasta og sjálfbærasta svæði heims árið 2030.
Áhersla er lögð á græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd, en fjórtán samstarfsáætlanir á mismunandi málefnasviðum marka pólitískar áherslur starfsins á tímabilinu 2025–2030.