7. október 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Þjóðaröryggi og veiking veltihringrásar Atlantshafsins í brennidepli á Arctic Circle

{image.Description}
Johan Rockström, Jóhann Páll Jóhannsson og Katrín Jakobsdóttir

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið stendur fyrir málstofu um veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) á Arctic Circle - Hringborði Norðurslóða, sem fram fer nú í vikulok. Málstofan er skipulögð í samstarfi við Dr. Johan Rockström, forstjóra Potsdam Institute for Climate Impact Research og Planetary Guardians, og fer fram 9. september  klukkan 16:00-17:00 í sal Norðurljósa í Hörpu.

Á málstofunni verður sjónum beint að þeim öryggisáskorunum sem gætu fylgt verulegri veikingu eða hruni veltihringrásar Atlantshafsins, hvernig slíkir atburðir geti haft áhrif á ólíka samfélagshópa og mikilvægi samstarfs stjórnmála- og vísindafólks við að takast á við loftslagstengda áhættu.

Veltihringrás Atlantshafsins er lykilhluti loftslagskerfis jarðar og hefur mikil áhrif á veðurfar og hafstrauma á Norður-Atlantshafi. Vísindarannsóknir hafa vakið athygli á hættu á verulegri veikingu eða mögulegu hruni hennar, sem gæti haft víðtækar afleiðingar fyrir Ísland og önnur Norðurlönd. Ríkisstjórn Íslands vísaði málefnum AMOC til þjóðaröryggisráðs á síðasta ári.

Alþjóðlegir sérfræðingar ræða loftslags- og öryggisáhættu

Í pallborði taka þátt meðal annars dr. Johan Rockström, Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands, Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri loftslagsskrifstofu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Hildigunnur Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands, Hindou Oumarou Ibrahim, stjórnarformaður Planetary Guardians og fyrrverandi formaður fastaráðs Sameinuðu þjóðanna um málefni frumbyggja, og Sóllilja Bjarnadóttir, doktorsnemi í umhverfisfélagsfræði við Háskóla Íslands.

Þá munu Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, dr. Johan Rockström og Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, taka þátt í umræðum á aðalsviði Arctic Circle í Silfurbergi um veltihringrás Atlantshafsins sem þjóðaröryggismál þennan sama dag, klukkan 14:15 á.

Jóhann Páll og Johan Rockström hafa áður vakið athygli á þeirri áhættu sem Íslandi og öðrum þjóðum getur stafað af verulegri veikingu eða hruni AMOC. Þeir hafa jafnframt kallað eftir því að Norðurlöndin styrki enn frekar forystu sína í aðgerðum gegn losun gróðurhúsalofttegunda og byggi samhliða upp öflug og samþætt kerfi til eftirlits, vöktunar, líkanagerðar og viðbúnaðar vegna AMOC og annarra mögulegra vendipunkta í loftslagskerfinu. Þá hefur Jóhann Páll lagt áherslu á málefni AMOC í norrænu samstarfi. Á fundi norrænna umhverfis- og loftslagsráðherra í Kaupmannahöfn setti hann mögulega veikingu veltihringrásarinnar á oddinn og lagði áherslu á að líta þyrfti á loftslagsáhættu sem öryggismál.