Verknám á Vestfjörðum eflt með stækkun Menntaskólans á Ísafirði
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Gylfi Ólafsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Með undirrituninni er stigið mikilvægt skref í átt að bættri aðstöðu til verk- og starfsnáms á Vestfjörðum.
Ísafjarðarbær mun taka að sér undirbúning og framkvæmdir vegna stækkunarinnar og byggja áfram á frumathugun Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE). Næst verður unnið að áætlanagerð og hönnun viðbyggingarinnar. Áhersla verður lögð á sveigjanlegt húsnæði sem nýtist til fjölbreyttrar kennslu, stuðlar að samvinnu nemenda og endurspeglar fjölbreytileika skólasamfélagsins.
„Ég vil að verk- og starfsnám fái þann sess sem það á skilið. Unga fólkið okkar á að geta valið nám eftir áhuga og hæfileikum og búsetan má ekki ráða því hvaða dyr standa því opnar. Það þýðir að við verðum að byggja upp góða aðstöðu og ríki og sveitarfélög þurfa að taka höndum saman. Með stækkun verknámshússins á Ísafirði gefum við fleiri ungmennum tækifæri til að læra iðn og byggja sér framtíð heima fyrir. Um leið styrkjum við Menntaskólann, atvinnulífið og byggðina á Vestfjörðum. Svona vil ég að við byggjum upp um allt land. Það á að vera hægt að láta drauma sína rætast líka utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.
Fyrir liggur samningur frá apríl 2024 milli ráðuneytisins og sveitarfélaganna Ísafjarðarbæjar, Súðavíkurhrepps, Árneshrepps, Reykhólahrepps og Bolungarvíkurkaupstaðar um byggingu viðbyggingar fyrir verk- og starfsnám við skólann. Samkvæmt kostnaðarskiptingu greiðir ríkissjóður 60% stofnkostnaðar og sveitarfélögin á Vestfjörðum 40%.
„Verknámshúsið er afar mikilvæg viðbót við vaxandi menntaskóla. Við erum með þessari viljayfirlýsingu að færa utanumhaldið með verkinu heim í hérað sem ég tel að verði mjög farsælt. Við erum reiðubúin að láta hendur standa fram úr ermum og nágrannasveitarfélögin eru mjög jákvæð. Menntaskólinn á Ísafirði iðar svo í skinninu að bæta aðstöðu núverandi verknema og fjölga greinum fyrir vaxandi atvinnulíf á Vestfjörðum og landinu öllu. Kennsla í háriðngreinum og húsasmíði fer fram í kjallara undir heimavist skólans en þar eru húsnæði og aðbúnaður langt frá því að mæta þeim kröfum sem gerðar eru í dag,“ segir Gylfi Ólafsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Með nýju viljayfirlýsingunni mun Ísafjarðarbær halda utan um undirbúning og verkframkvæmdir samkvæmt svonefndri sveitarfélagaleið. Sú leið færir umsjón verkefnisins nær heimabyggð og því samfélagi sem aðstaðan mun þjóna.
Stækkunin á Ísafirði er hluti af víðtækri uppbyggingu verknámsaðstöðu um landið. Meðal annarra verkefna eru stækkun verknámshúsa Verkmenntaskólans á Akureyri, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, ný aðstaða Tækniskólans á höfuðborgarsvæðinu og viðbygging við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.