8. október 2026 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Einkunnir í tölustöfum – breytt námsmat við lok grunnskóla til umsagnar

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að bráðabirgðaákvæði í aðalnámskrá grunnskóla. Ákvæðið útfærir fyrirhugaða notkun talnaeinkunna við brautskráningu úr 10. bekk skólaárið 2026–2027 í stað bókstafseinkunnanna A–D.

Markmið fyrirhugaðra breytinga á námsmati við lok grunnskóla er að gera framsetningu einkunna skýrari og samræmdari og þannig stuðla að auknu jafnræði nemenda, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Jafnframt er stefnt að því að bæta upplýsingagjöf til nemenda og foreldra þannig að þeir eigi auðveldara með að átta sig á stöðu í námi, framförum og þeirri hæfni sem nemandinn hefur náð.

Samkvæmt drögunum eru skólar hvattir til að nota kvarðann 1–10 við námsmat á skólaárinu. Við brautskráningu skulu einkunnir hins vegar vera á bilinu 4–10 og einkunnin 7 merkir að hæfniviðmiðum hafi verið náð. Skólar skulu birta endurskoðaða skólanámskrá eigi síðar en 10. janúar 2027.

Greint er á milli einkunna fyrir einstök verkefni og próf annars vegar og lokaeinkunnar eftir heilt skólaár hins vegar. Þótt sami talnakvarði geti komið við sögu er verið að meta ólíka hluti. Einkunn fyrir einstakt verkefni lýsir frammistöðu í því verkefni, en lokaeinkunn er heildstætt mat á þeirri hæfni sem nemandinn hefur sýnt yfir skólaárið, með hliðsjón af hæfniviðmiðum aðalnámskrár og fjölbreyttum matsgögnum.

Þegar kemur að námsmati á verkefnum og einstaka prófum má nota einkunnakvarðann 1 - 10. Þá getur einkunnin 7 merkt að nemandinn hafi náð 70% árangri í viðkomandi verkefni eða prófi.

Sé hins vegar um að ræða „lokaeinkunn“ nemanda eftir heilt skólaár, skal hún birt á kvarðanum 4 - 10. Lokaeinkunn samkvæmt aðalnámskrá er mat á „hæfni” nemenda eftir heilt skólaár en er ekki einkunn fyrir eitt lokapróf. Nemendur fá ýmis konar leiðsögn og endurgjöf yfir skólaárið sem felur ekki alltaf í sér eina einkunn. Hæfniviðmið aðalnámskrár sem kennarar byggja kennslu á eru lýsing á því sem nemandi á að hafa náð tökum á.

Lokaeinkunn er því annars eðlis en einkunnir fyrir einstök próf og verkefni. Lokaeinkunn skal lýsa þeirri „hæfni“ sem nemandinn hefur náð eftir skólaárið. Við lokamat á hæfni nemenda er því litið til allra verkefna, prófa og annarrar frammistöðu sem nemandi hefur sýnt af sér yfir allan veturinn.

Fái nemandi ítrekaðar einkunnir á bilinu 1 - 4 kallar það eftir viðbrögðum skólans í formi aukins stuðnings eða einstaklingsmiðaðs náms.

Merking lokaeinkunna er í meginatriðum þessi:

  • Einkunnin 4 merkir að hæfniviðmiðum flokksins hafi ekki verið náð. Skóli gerir þá sérstaka grein fyrir hæfni viðkomandi nemanda.
  • Einkunnir 5 og 6 lýsa stigvaxandi hæfni á leið að því að hæfniviðmiðum flokksins sé náð.
  • Einkunnin 7 merkir að hæfniviðmiðum flokksins hafi verið náð.
  • Einkunnir 8 til 10 lýsa stigvaxandi meiri dýpt, öryggi, sjálfstæði og beitingu þeirrar hæfni sem hæfniviðmið flokksins ná yfir. Þannig fær nemandi 9 eða 10 fyrir framúrskarandi tök á þeirri hæfni sem gerð er krafa um í grunnskóla. Að gefnu tilefni er tekið fram að ekki er gerð krafa að slíkur nemandi þurfi að ljúka framhaldsskólaáfanga.

Breytingin er liður í heildarendurskoðun á námsmati í grunnskólum og byggir á niðurstöðum samráðs um áform sem kynnt voru í Samráðsgátt stjórnvalda síðastliðið sumar. Með bráðabirgðaákvæðinu er brugðist við ákalli úr skólasamfélaginu um skýrari, einfaldari og samræmdari einkunnagjöf og gerð vitnisburðar við brautskráningu úr grunnskóla.

Sérstaklega er óskað eftir umsögnum um framkvæmd námsmatsins, notkun talnakvarðans og upplýsingar á vitnisburðarskírteini. Umsagnarfrestur er til og með 21. október.