8. október 2026 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Niðurstöður PISA 2025 í stærstu sveitarfélögum landsins

{image.Description}

Niðurstöður PISA 2025 voru birtar í síðasta mánuði. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur nú greint frammistöðu íslenskra nemenda í rannsókninni niður á sjö fjölmennustu sveitarfélög landsins og borið saman við landsmeðaltal. Hér eru niðurstöður PISA birtar í fyrsta sinn fyrir öll stærstu sveitarfélög landsins.

Birtar eru niðurstöður fyrir stærri sveitarfélög sem eru með nægilegan fjölda þátttakenda til að veita áreiðanlegar og samanburðarhæfar niðurstöður. Ekki eru birtar niðurstöður fyrir smærri sveitarfélög eða einstaka skóla sökum fámennis – sjá nánar undir Um greiningu niður á sveitarfélög og skóla hér að neðan.

Sveitarfélögin sjö ná til 75% þátttakenda í PISA 2025 á Íslandi. Flest stærstu sveitarfélög landsins eru á höfuðborgarsvæðinu og mikill meirihluti þátttakenda (85%) úr sveitarfélögunum sjö stundar því nám á höfuðborgarsvæðinu. Til samanburðar er einnig greint frá niðurstöðum fyrir nemendur úr öðrum sveitarfélögum í heild, sem samsvarar 25% þátttakenda.

Við túlkun er gott að hafa í huga að frammistöðumunur milli íslenskra skóla í heild er einn sá minnsti sem mældist meðal þátttökuríkja í PISA 2025 (OECD, 2026).

Nemendahópar sveitarfélaga eru ólíkir að samsetningu sem getur haft áhrif á frammistöðu. Hér er litið til tveggja þátta í samsetningunni: félags- og efnahagslegrar stöðu (menntun og starf foreldra og eigur á heimilinu) og erlends bakgrunns (nemendur sem eiga foreldra eða forsjáraðila sem báðir fæddust erlendis). Rannsóknir sýna að þættirnir sýna talsverða fylgni við námsárangur, meðal annars í PISA. Niðurstöður eru sýndar bæði óleiðréttar og leiðréttar fyrir þessum þáttum. Leiðréttingin ber nemendur hvers sveitarfélags saman við nemendur á landsvísu í svipaðri félags- og efnahagslegri stöðu og með sama bakgrunn. Ef munur á frammistöðu nemenda í sveitarfélagi og landsmeðaltali minnkar eða hverfur við leiðréttinguna skýrist munurinn að hluta eða að mestu af samsetningu nemendahópsins. Gott er að hafa í huga að leiðréttar niðurstöður segja þó ekki einar og sér til um gæði skólastarfs.

Mynd 1 hér að neðan sýnir meðalstig nemenda í sveitarfélögunum á sviðum PISA 2025 miðað við landsmeðaltal. Mynd 2 sýnir sömu meðalstig leiðrétt fyrir félags- og efnahagslegri stöðu og erlendum bakgrunni. Á myndunum táknar dekkri litur að frammistaða í viðkomandi sveitarfélagi var marktækt frábrugðin landsmeðaltali en ljósari litur að munurinn var ekki marktækur.

Meðaltal OECD-ríkja er hér sýnt fyrst og fremst til samanburðar við landsmeðaltal, ekki við einstök sveitarfélög, enda byggir meðaltal OECD-ríkja á heildarframmistöðu þar sem nemendur úr bæði þéttbýli og dreifbýli eru undir.

Frammistaða nemenda í Reykjavík og Kópavogi var yfir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum og nemendur á Akureyri voru yfir landsmeðaltali í vísindum og stærðfræðilæsi. Þá stóðu nemendur í Garðabæ sig betur en nemendur á landsvísu í stærðfræðilæsi.

Hins vegar stóðu nemendur í Reykjanesbæ sig verr en nemendur gerðu að jafnaði á landsvísu á öllum þremur sviðum og nemendur í Hafnarfirði á tveimur af þremur sviðum (vísindum og lesskilningi). Frammistaða nemenda í öðrum sveitarfélögum í heild var undir landsmeðaltali á öllum sviðum en hafa þarf í huga að í þessum hópi eru fjölmörg  sveitarfélög sem eru sum hver ólík hvað varðar stærð, staðsetningu og lýðfræðilegar breytur.

Mynd 2 sýnir að í flestum sveitarfélögum minnkar munurinn frá landsmeðaltali eftir að leiðrétt hefur verið fyrir erlendum bakgrunni og ólíkri félags- og efnahagslegri stöðu nemenda. Í Reykjavík breytist munurinn þó lítið og þar mælast nemendur áfram yfir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum. Utan Reykjavíkur mælist Kópavogur eitt sveitarfélaga yfir landsmeðaltali – og eingöngu í stærðfræðilæsi.

Munur á nemendum í Reykjanesbæ og nemendum á landsvísu minnkar eftir leiðréttingu, enda er þar að finna hæsta hlutfall innflytjenda í sveitarfélögunum sjö ásamt því að félags- og efnahagsleg staða mælist þar lægst að jafnaði. Nemendur í Reykjanesbæ eru þó áfram undir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum. Utan Reykjanesbæjar er það aðeins Hafnarfjörður sem mælist áfram undir landsmeðaltali, og aðeins á sviði vísinda. Þegar horft er til annarra sveitarfélaga á landsvísu sýnir mynd 2 að þegar leiðrétt hefur verið fyrir ofangreindum þáttum er þessi hópur aðeins undir landsmeðaltali í stærðfræðilæsi.

Grunn- og afburðahæfni

Mynd 3 sýnir hlutfall nemenda sem búa yfir grunn- eða afburðahæfni í PISA 2025.  Mynd 4 sýnir sömu hlutföll eftir að leiðrétt hefur verið fyrir bæði erlendum bakgrunni og félags- og efnahagslegri stöðu nemenda.

Efri hluti myndar 3 sýnir að í tveimur sveitarfélögum – Kópavogi og Akureyri – var hlutfall nemenda með grunnhæfni hærra en á landsvísu bæði í vísindum og stærðfræðilæsi. Þá var hlutfall reykvískra nemenda með grunnhæfni yfir landsmeðaltali í lesskilningi og hlutfall nemenda í Garðabæ yfir landsmeðaltali í stærðfræðilæsi.

Aftur á móti var hlutfall nemenda með grunnhæfni í Reykjanesbæ lægra en landsmeðaltal á öllum þremur sviðum PISA. Þá var hlutfall hafnfirskra nemenda með grunnhæfni undir landsmeðaltali í vísindum og í öðrum sveitarfélögum í heild var hlutfall nemenda með grunnhæfni lægra en á landsvísu í stærðfræðilæsi.

Neðri hluti myndar 3 sýnir hlutfall nemenda með afburðahæfni. Hópur nemenda með afburðahæfni á Íslandi er fámennur og á myndinni eru tölur (súlur) einungis birtar fyrir sveitarfélög með nægan fjölda nemenda í þessum hópi. Reykjavík er eina staka sveitarfélagið sem skilur sig frá landsmeðaltali. Þar voru nemendur með afburðahæfni hlutfallslega fleiri en á landsvísu á öllum þremur sviðum PISA. Í öðrum sveitarfélögum samanteknum var hlutfall nemenda með afburðahæfni undir landsmeðaltali bæði í vísindum og stærðfræðilæsi.

Mynd 4 sýnir að munur á hlutfalli nemenda með grunnhæfni innan sveitarfélaganna og hlutfalli á landsvísu dregst saman eftir að tekið hefur verið tillit til bakgrunns og félags- og efnahagslegrar stöðu. Munurinn helst marktækur í einungis tveimur sveitarfélögum og aðeins á sviði lesskilnings. Í Reykjavík er hlutfall nemenda með grunnhæfni í lesskilningi því hærra en að jafnaði á landinu og í Reykjanesbæ lægra. Munur á hlutfalli nemenda með afburðahæfni gagnvart landsmeðaltali í sveitarfélögunum sjö breytist hins vegar lítið eftir að leiðrétt hefur verið fyrir ofangreindum breytum, sem gæti skýrst að hluta af smæð þessara nemendahópa. Eftir leiðréttingu er munurinn ekki lengur marktækur fyrir hópinn „önnur sveitarfélög“, en í Reykjavík er hlutfall nemenda með afburðahæfni áfram hærra en á landsvísu á öllum þremur sviðum.

Um greiningu niður á sveitarfélög og skóla

Tilgangur PISA er að gefa heildarmynd af hæfni 15 ára nemenda í hverju þátttökulandi. Til þess er verkefnum úr stórum verkefnabanka dreift á alla nemendur, þannig að hver nemandi svarar aðeins litlum hluta þeirra. Þetta fyrirkomulag gefur góða mynd af hæfni nemenda í heild, en um hæfni hvers nemanda ríkir mikil tölfræðileg óvissa. Sams konar óvissa ríkir um smærri hópa, til dæmis nemendur í einu sveitarfélagi, en óvissan minnkar eftir því sem nemendurnir eru fleiri. Við það bætist að frammistaða nemenda er mjög misjöfn og í litlum hópi geta fáeinir nemendur hnikað meðaltalinu verulega. Hópurinn þarf því að vera nægilega stór til að hægt sé að greina raunverulegan mun frá tilviljun.

Mennta- og barnamálaráðuneytið birtir hér niðurstöður sveitarfélaga þar sem nógu margir nemendur tóku þátt. Viðmiðið er að 20 stiga munur frá landsmeðaltali í vísindum, áherslusviði PISA 2025, greinist tölfræðilega marktækur en sá munur samsvarar gróflega framförum nemenda í PISA á einu skólaári. Til að ná viðmiðinu þarf um 160 þátttakendur. Því færri sem nemendurnir eru, því víðari verða skekkjumörkin og því meiri þarf munurinn að vera til að teljast marktækur.

Aðeins tveir grunnskólar á landinu eru svo fjölmennir að þeir standist sama viðmið. Efnahags- og framfarastofnunin (OECD), sem hannaði PISA-rannsóknina, segir sjálf að hönnun PISA miði ekki að því að veita réttar niðurstöður fyrir einstaka skóla. Á Íslandi eru skólar smærri og fámennari í alþjóðlegum samanburði og veitir rannsóknin því enn síður áreiðanlegar niðurstöður fyrir einstaka skóla á Íslandi. Af þessum sökum eru niðurstöður ekki reiknaðar fyrir einstaka grunnskóla eða fámenn sveitarfélög hvert fyrir sig, heldur eru fámennari sveitarfélög sýnd saman.