9. október 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Skipulagsbreytingar lögreglu birtar í samráðsgátt

{image.Description}

Drög að frumvarpi til breytinga á lögreglulögum og fleiri lögum vegna skipulagsbreytinga lögreglu hafa nú verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Frestur til að koma að athugasemdum er til og með 25. október næstkomandi.

Aðstoðarlögreglustjórum fjölgað

Breytingunum er ætlað að styrkja faglega getu lögreglu, einfalda stjórnskipulag og bæta nýtingu mannafla, sérþekkingar og fjármuna.

Í frumvarpinu er lagt til að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú þannig að til verði tvö stór og öflug lögregluembætti á landsbyggðinni og eitt á suðvesturhorninu. Fjölga á aðstoðarlögreglustjórum og styrkja fyrirkomulag eftirlits með lögreglu.

Frumvarpið felur hvorki í sér fækkun lögreglumanna né lokun lögreglustöðva heldur verður áfram lögð rík áhersla á staðbundna þjónustu og viðbragðsgetu um land allt. Þá á fækkun embætta ekki að leiða til miðstýringar á daglegri þjónustu eða draga úr staðbundinni viðveru lögreglu.

„Umræða hefur verið um að sameina lögregluna undir einn hatt. Mér hugnast það ekki. Ég vil að lögreglan á landsbyggðinni sé sterk og haldi góðum tengslum við nærsamfélagið. Með breytingunum verða til tvö sterk embætti á landsbyggðinni sem geta byggt upp eftirsóknarverða sérþekkingu samhliða því að bjóða upp á fjölbreyttari starfsþróunarmöguleika í heimabyggð,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Áhersla á verkefni á landsbyggðinni

Í frumvarpinu er að finna heimild ráðherra til að ákveða með reglugerð að embættin á landsbyggðinni annist verkefni á landsvísu. Þessu er ætlað að skapa meiri sveigjanleika í skipulagi lögreglu en í núgildandi lögum.

Lögð er áhersla á að staðsetja landsbundin verkefni hjá embættunum á landsbyggðinni, með það í huga að dreifa sérhæfðum og landsbundnum verkefnum um landið þannig að fagþekking og sérhæfð störf verði um land allt. Gert er ráð fyrir að ný lögregluembætti taki til starfa 1. janúar 2028.