Þorgerður Katrín fundaði með utanríkisráðherra Kanada
Vaxandi samstarf Íslands og Kanada, málefni norðurslóða og viðskiptamál voru í brennidepli á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Anitu Anand, utanríkisráðherra Kanada, sem fram fór í dag. Ráðherrarnir ræddu einnig mikilvægi áframhaldandi stuðnings við varnarbaráttu Úkraínu og stöðu mála í Mið-Austurlöndum.
Í sameiginlegri yfirlýsingu ráðherranna eru sterk tengsl Íslands og Kanada áréttuð með áherslu á öryggi, stöðugleika og velmegun. Ráðherrarnir lýsa stuðningi við aukinn viðbúnað Atlantshafsbandalagsins á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi og undirstrika þau mikilvægu skref sem tekin hafa verið í öryggis- og varnarsamstarfi Íslands og Kanada, m.a. með uppfærðu samkomulagi á því sviði sem var undirritað í júní síðastliðnum. Þá er lýst ríkum vilja til að efla enn frekar samstarf á sviði viðskipta, nýsköpunar og á vettvangi fræðasamfélagsins. Ráðherrarnir ítrekuðu sameiginlegan vilja til að uppfæra fríverslunarsamning ríkjanna og ákváðu jafnframt að styrkja tengslanet um nýtingu jarðhita sem lið í að hraða þróun á grænum lausnum í orkumálum. Yfirlýsinguna í heild sinni má lesa hér.
„Það er kærkomið að fá Anand í heimsókn til að styrkja enn frekar okkar öfluga samstarf og ræða sameiginlega fleti sem eru fjölmargir, ekki síst er lýtur að norðuslóðum, öryggis- og varnarmálum, viðskiptum og efnahagslegri þróun,“ segir Þorgerður Katrín. „Ég legg áherslu á að rækta öflug tengsl við þessa góðu vina- og bandalagsþjóð okkar Íslendinga, sem deilir með okkur sameiginlegum gildum og áherslum.“
Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og kynnir sér að því loknu aðstæður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli áður en hún heldur af landi brott.