Umræður um gervigreind og mannréttindi áberandi í haustlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna lauk í gær þriðju og síðustu fundarlotu þessa árs en Ísland á sæti í ráðinu út árið 2027. Haustlotan stóð yfir í rúmar fjórar vikur frá 7. september – 7. október en hún er sú sextugasta og þriðja í röðinni frá því að til mannréttindaráðsins var stofnað. Alls tók mannréttindaráðið að þessu sinni til umfjöllunar 34 ályktanir og þrjár ákvarðanir, þar af voru 24 textar samþykktir samhljóða en atkvæði greidd um tíu þeirra. Þá voru lagðar fram nokkrar breytingartillögur um ályktanir í þeim tilgangi að veikja texta þeirra en þær voru annað hvort felldar í atkvæðagreiðslu eða dregnar til baka vegna skorts á stuðningi.
Haustlota mannréttindaráðsins einkennist af fjölda ályktana um alvarlega stöðu mannréttinda í einstökum ríkjum. Að þessu sinni fjallaði ráðið m.a. um mannréttindaástandið í Afganistan, Súdan, Rússlandi, Búrúndí og Venesúela. Þá var fjallað um ályktanir um tæknilega aðstoð við ríki á sviði mannréttinda, þar á meðal fyrir Georgíu, Jemen, lýðstjórnarlýðveldið Kongó og Mið-Afríkulýðveldið. Auk þess voru málefni Úkraínu áberandi í lotunni.
Gervigreind og áhrif á mannréttindi
Til viðbótar við ofangreindar ríkjaályktanir var fjallað um einstök málefni í svokölluðum þematískum ályktunum, þar á meðal réttinn til vatns og hreinlætis, mannréttindi ungmenna, gervigreind og mannréttindi og réttindi frumbyggja. Umfjöllun um gervigreind setti raunar svip á fjölda ályktana í lotunni. Í reglubundinni skýrslu sinni til ráðsins tók mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, sterkt til orða um áhrif gervigreindar á mannréttindi og sagði regluverk ekki halda í við öra þróun tækninnar. Ríki þar sem gervigreind væri þróuð og ríki sem koma að aðfangakeðjum yrðu að koma sér saman um skýrt regluverk, óháð eftirlit og aukið samstarf. Þá yrði að huga að áhrifum gervigreindar á vinnurétt, lýðræði og umhverfið. Mannréttindi ættu að vera við leiðarljós við þróun tækninnar, þannig að tæknin myndi þjóna mannkyninu, en ekki öfugt.
Þess má geta að Türk mannréttindafulltrúi er væntanlegur til Íslands en hann verður m.a. meðal ræðumanna á árlegri friðarráðstefnu, Imagine Forum, nk. mánudag í Hörpu en ráðstefnan í ár er samstarfsverkefni utanríkisráðuneytisins, Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, skrifstofu forseta Íslands, Reykjavíkurborgar og sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands.
„Ísland heldur áfram að vinna öflugt starf í mannréttindaráðinu þar sem við verjum og eflum samstöðu um mannréttindi á heimsvísu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Þetta endurspeglast meðal annars í virkri þátttöku okkar í þessari lotu í umræðum um Íran, Afganistan og Súdan, auk þess sem það hefur verið á brattann að sækja hvað varðar réttindi kvenna og stúlkna, jafnréttismál og réttindi hinsegin fólks. Ísland mun áfram leggja áherslu á grundvallargildi, að borin sé virðing fyrir alþjóðalögum og mannréttindi séu höfði í heiðri.“
Málefni Írans til umræðu
Rannsóknarnefnd mannréttindaráðsins um Íran (e. Independent Fact-Finding Mission) kynnti skýrslu sína sem unnin var á grundvelli ályktunar sérstaks aukafundar mannréttindaráðsins sem haldinn var í janúar sl., en Ísland leiddi ákall um fundinn ásamt hópi ríkja. Skýrslan er viðbót við reglubundna skýrslugjöf nefndarinnar og fjallar annars vegar um viðbrögð íranskra stjórnvalda við mótmælunum sem hófust í lok árs 2025 og hins vegar um brot í tengslum við vopnuð átök Írans, Bandaríkjanna og Ísraels. Í umræðum um skýrsluna var Ísland aðili að sameiginlegu ávarpi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Auk þess tók Ísland undir sameiginlega yfirlýsingu sem fordæmdi stigvaxandi beitingu stjórnvalda í Íran á dauðarefsingum.
Þá stóð Ísland fyrir lokuðum fundi um stöðu mannréttinda í Íran þar sem m.a. tóku þátt fulltrúar rannsóknarnefndarinnar, sérstakur skýrslugjafi SÞ um mannréttindi í Íran, frjálsu félagasamtökin Impact Iran og fulltrúar íranskra mannréttindasamtaka.
Raddir kvenna í Afganistan
Frá valdatöku talíbana í Afganistan árið 2021 hefur mannréttindaráðið samþykkt árlega ályktun, sem Evrópusambandið heldur utan um, um stöðu mannréttinda þar. Með ályktuninni er umboð sérstaks skýrslugjafa ráðsins endurnýjað, en hann hefur fjallað um kerfisbundna og stofnanavædda kúgun talíbana á konum og stúlkum og sagt stefnuna jafnast á við aðskilnaðarstefnu á grundvelli kynferðis. Ísland tók virkan þátt í samningaviðræðum um ályktunina og kallaði meðal annars eftir því að haldin yrði sérstök umræða um stöðu kvenna og stúlkna í Afganistan með þátttöku afganskra kvenna. Var þessi tillaga Íslands samþykkt og fer umræðan fram í sumarlotu ráðsins í júní 2027.
Þá stóð Ísland fyrir hliðarviðburði ásamt Kýpur þar sem fjallað var um mikilvægi þess að styðja við staðbundin félagasamtök, einkum samtök sem leidd eru af konum, með áherslu á mannúðaraðstoð í Afganistan. Sérstaklega var fjallað um árangur af starfi mannúðarsjóðs UN Women (e. Women‘s Peace and Humanitarian Fund) í Afganistan, en Ísland veitir árlegt framlag til sjóðsins.
Ávörp og sameiginlegar yfirlýsingar
Ísland flutti sameiginlega yfirlýsingu í tilefni af alþjóðlega jafnlaunadeginum sem stofnsettur var að frumkvæði Íslands og haldinn er 18. september ár hvert. Í yfirlýsingunni var mikilvægi launajafnréttis ítrekað og tóku hátt í 50 ríki undir yfirlýsinguna. Þá tók Ísland undir fjölda sameiginlegra yfirlýsinga sem leiddar voru af öðrum ríkjum og fluttar undir mismunandi dagskrárliðum í gegnum lotuna. Þar á meðal var yfirlýsing Frakklands og Albaníu þar sem ríki eru hvött til að afnema lög sem kveða á um refsingar við samkynja sambönd. Fleiri en 60 ríki eru með slík lög í gildi og í yfirlýsingunni var ítrekað að afglæpavæðing samkynhneigðar væri nauðsynlegt skref til að tryggja réttindi allra, þar með talið hinsegin fólks.
Auk ofangreindra ávarpa voru flutt fjölmörg sameiginleg ávörp í nafni Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem eiga náið samráð og samstarf í mannréttindaráðinu. Þá flutti Ísland jafnframt nokkur ávörp í eigin nafni, m.a. í umræðum í kjölfar opnunar ávarps mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna og í umfjöllun um mannréttindaástand í einstökum ríkjum. Að auki flutti Ísland sömuleiðis fjölda afstöðuskýringa í tengslum við atkvæðagreiðslur. Allar ræður Íslands í mannréttindaráðinu má finna hér.
Raddir ungmenna í mannréttindaráðinu
Ein af áherslum Íslands í mannréttindaráði SÞ er að efla réttindi barna og ungmenna og tryggja að raddir þeirra fái að heyrast. Liður í því er að gefa ungu fólki tækifæri til að kynnast störfum ráðsins meðan á setunni stendur. Í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands var því valinn háskólanemi til þátttöku í lotunni sem hluti af sendinefnd Íslands. Að þessu sinni tók fastanefnd á móti Hildi Telmu Hauksdóttur, meistaranema í alþjóðasamskiptum, sem tók virkan þátt í lotunni í tvær vikur. Þá naut fastanefnd einnig liðsinnis Þórhildar Davíðsdóttur Söebech, ungmennafulltrúa Íslands á sviði mannréttinda. Hún tók þátt í störfum Íslands í mannréttindaráðinu og flutti meðal annars ræðu um mikilvægi mannréttindafræðslu og að ungt fólk eigi sæti við borðið þegar kemur að mannréttindaumræðu.
------
Ísland var kjörið til setu í mannréttindaráði SÞ fyrir tímabilið 2025-2027. Mannréttindaráðið fundar að jafnaði í þremur reglubundnum fundalotum á ári sem standa yfir í nokkrar vikur í senn. Frekari upplýsingar um setu Íslands í mannréttindaráðinu má finna á vefsíðu utanríkisráðuneytisins.