9. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Aukin samvinna Íslands og Grænlands í brennidepli á fundi ráðherra

{image.Description}
Þorgerður Katín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Múte B. Egede utanríkisráðherra Grænlands ásamt sendinefnd Grænlands og starfsfólki utanríkisráðuneytisins.

Sameiginlegir hagsmunir Grænlands og Íslands og öryggismál á norðurslóðum voru efst á baugi fundar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Múte B. Egede, utanríkisráðherra Grænlands, sem fram fór í Reykjavík í gær.

„Við áttum afar gagnlegan fund um samstarf Íslands og Grænlands enda eru hagsmunir okkar um öryggi og þróun á norðurslóðum samofnir. Nýlegt samkomulag Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna styrkir öryggi og varnir í okkar heimshluta og undirstrikar mikilvægi Atlantshafsbandalagsins,“ segir Þorgerður Katrín. „Það er einlægur vilji beggja landa að styrkja tengslin enn frekar,  meðal annars á grunni sameiginlegra yfirlýsinga landanna frá árunum 2022 og 2025.“

Þá ræddu ráðherrarnir endurskoðun á Helsingforssamningnum á sviði norræns samstarfs, en fyrr á árinu var skipuð nefnd til að vinna tillögur að endurskoðun samningsins vegna þátttöku Færeyja, Grænlands og Álandseyja á jafnræðisgrundvelli.

Málið verður einnig til umfjöllunar á komandi þingi Norðurlandaráðs sem fram fer í Helsinki dagana 26.-29. október nk.