9. október 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Forsenda framfara að ríki og sveitarfélög vinni náið saman

{image.Description}
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra

Ríki og sveitarfélög bera sameiginlega ábyrgð á opinberri þjónustu og þurfa að eiga náið og uppbyggilegt samstarf. Þetta kom fram í ávarpi fjármála- og efnahagsráðherra á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2026.

Endurbyggja þarf fjárhagslegt þol

Ráðherra sagði ríkissjóð hafa tekið á sig stóran hluta kostnaðar vegna áfalla undanfarinna ára. Með því hefði verið hægt að verja framleiðslugetu, koma í veg fyrir gjaldþrot og styðja við efnahagsbatann.

Stuðningurinn hefði hins vegar kostað 866 milljarða króna. Auknar skuldir og hærri vaxtakostnaður drægju nú úr getu ríkisins til að veita þjónustu, fjárfesta og takast á við næsta áfall.

„Nú þurfum við að sýna að við getum líka byggt upp fjárhagslegt þol milli áfalla. Við getum ekki rekið ríkissjóð með viðvarandi halla á góðum tímum og treyst á hvalreka í hvert einasta skipti,“ sagði ráðherra.

Hann sagði stöðugleika sameiginlegt hagsmunamál launafólks, atvinnurekenda, ríkis og sveitarfélaga. Sveitarfélögin hefðu lagt sitt af mörkum til að styðja kjarasamninga og draga úr verðbólgu en ríkissjóður stefndi að því að ná aftur jafnvægi í rekstrinum.

Fjármunum forgangsraðað

Fjármála- og efnahagsráðuneytið vinnur að endurmati útgjalda   í samstarfi við OECD. Að sögn ráðherra snýst verkefnið um að hemja vöxt opinberra útgjalda, endurskoða forgangsröðun og kanna hvort verkefnum sé sinnt með hagkvæmum og árangursríkum hætti.

„Við þurfum að geta horft á þau verkefni sem við sinnum og spurt hvort við myndum ákveða að framkvæma þau með sama hætti í dag. Endurmat útgjalda snýst ekki aðeins um að draga úr kostnaði heldur um að forgangsraða fjármunum betur og tryggja að þeir nýtist þar sem þörfin er mest,“ sagði ráðherra.

Hann bauð sveitarfélögunum að taka þátt í verkefninu og nýta þá þekkingu og reynslu sem verður til við vinnuna.

Sameiginleg stefna um opinbera þjónustu

Ráðherra kynnti einnig sameiginlega stefnu ríkis og sveitarfélaga um opinbera þjónustu. Markmið hennar er að samræma þjónustuna og gera hana betri, aðgengilegri og hagkvæmari. Stefnan felur í sér yfir 100 aðgerðir sem styðja við þessi markmið.

Ráðherra benti á að ánægja með opinbera þjónustu hafa aukist ár frá ári. Sérstök tækifæri fælust í samstarfi ríkis og sveitarfélaga um stafrænar lausnir og væri ríkið reiðubúið að leggja fram þekkingu og lausnir Stafræns Íslands.

Verkefni og tekjur þurfa að haldast í hendur

Ráðherra lagði áherslu á að sveitarfélög þyrftu traustan tekjugrunn til að sinna lögbundinni þjónustu. Verkefni sem þeim væru falin og tekjur til að sinna þeim þyrftu að haldast í hendur.

Meðal mála sem væru til skoðunar nefndi hann Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, stofnframlög, fjármagnskostnað og fasteignaskatt á orkumannvirki. Einnig þyrfti að efla fjárfestingu og verðmætasköpun um allt land.

Uppbygging innviða væri eitt stærsta sameiginlega verkefni ríkis og sveitarfélaga. Þar væru engar skyndilausnir í boði heldur þyrfti langtímahugsun og raunhæf en metnaðarfull markmið.

„Við berum sameiginlega ábyrgð á hinu opinbera. Forsenda framfara er að ríki og sveitarfélög vinni náið og vel saman. Í grunninn snýst þetta um að byggja upp samfélag sem þjónar fólkinu sem best,“ sagði ráðherra.