9. október 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Korda ætlað að auka öryggi mikilvægra fjarskiptainnviða

{image.Description}
Þorvarður Sveinsson framkvæmdastjóri Korda, Marta Eiríksdóttir stjórnarformaður Korda og Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. Mynd: Korda

Samruni Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar í Korda á að draga úr tvíverknaði, bæta nýtingu fjármuna og efla getu Íslands til að takast á við tæknilegar áskoranir. Þetta kom fram í ávarpi Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, þegar stofnun félagsins var fagnað í síðustu viku.

Korda tók til starfa 1. september þegar Farice, Öryggisfjarskipti og tæknihluti Neyðarlínunnar voru sameinuð í eitt félag, sem er að fullu í eigu íslenska ríkisins.

Ráðherra sagði samrunann fela í sér meira en nýtt nafn á kunnuglegri starfsemi. Með henni væri rekstur mikilvægra innviða færð undir eina stjórn.

„Við erum að færa saman fólk, þekkingu og rekstur innviða sem Íslendingar treysta á hvern einasta dag,“ sagði fjármálaráðherra.

Undir merkjum Korda eru þrír sæstrengir sem tengja Ísland við alþjóðleg fjarskiptanet, Tetra-kerfið og tæknileg kerfi sem styðja við neyðarþjónustu. Félagið er jafnframt tæknilegur bakhjarl Neyðarlínunnar, sem sinnir áfram neyðarsvörun í 112.

Ráðherra sagði mikilvægi þessara innviða oft lítt sýnilegt meðan kerfin störfuðu eðlilega. Afleiðingarnar kæmu hins vegar fljótt í ljós ef samband rofnaði eða tæknileg kerfi brygðust.

Ráðherra sagði ríkið, sem eiganda félagsins, bera ábyrgð á að gera skýrar kröfur um öruggan og ábyrgan rekstur. Um leið þyrfti að tryggja Korda nægilegt svigrúm til að þróast og sinna hlutverki sínu til framtíðar.

Sameiningin ætti meðal annars að styrkja viðbúnað vegna náttúruvár, tæknibilana og breyttra alþjóðlegra aðstæðna. Undirbúningur fjórða sæstrengsins, AUÐAR, væri dæmi um þá langtímahugsun sem uppbygging fjarskiptainnviða kallaði á.

„Verkefnið er skýrt: að halda Íslandi vel tengdu, tryggja fjarskipti þegar á reynir og nýta sameinaða krafta til að gera hvort tveggja enn betur,“ sagði fjármálaráðherra.