9. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Ungmenni tókust á við öryggisáskorun á vettvangi Atlantshafsbandalagsins

{image.Description}
Daria Gribovskis / Varðberg
Það var spennuþrungin stemmning í Smiðju Alþingis meðan þátttakendur Módel-NATO tókust sameiginlega á við ímyndaða öryggisáskorun.

Yfir áttatíu þátttakendur, á aldrinum 18 til 35 ára, tóku nýverið þátt í svokallaðri Módel-NATO ráðstefnu sem fram fór í Smiðju Alþingis á dögunum. Þar var starfsemi Atlantshafsbandalagsins, nánar tiltekið fundur í Norður-Atlantshafsráðinu, endurgerð þar sem þátttakendur tókust sameiginlega á við ímyndaða öryggisáskorun.

Ráðstefnunni er ætlað að efla diplómatíska færni þátttakenda og veita þeim tækifæri til að vinna saman, takast á við krefjandi viðfangsefni og taka þátt í umræðum og ákvarðanatöku í alþjóðlegu samhengi. Þátttakendur stigu þannig í hlutverk fulltrúa allra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og nálguðust verkefnið út frá stefnu og hagsmunum viðkomandi ríkis.

„Það er gríðarlega mikilvægt að unga fólkið okkar láti sig öryggis- og varnarmál varða, enda lifum við víðsjárverðum tímum nú um stundir. Þessi æfing var því kærkomið tækifæri fyrir þau til að dýpka skilning sinn og þekkingu á eðli og starfsemi Atlantshafsbandalagsins. Það er nefnilega ekki viðbúið að það takist alltaf að sætta sjónarmið 32 ólíkra ríkja, og því er stundum sagt að Norður-Atlantshafsráðið sé besti skólinn hvað varðar diplómasíu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Módel NATO-ráðstefnan er vettvangur fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á, stunda nám eða starfa á sviði stjórnmála, alþjóðasamskipta, lögfræði eða opinberrar þjónustu. Ráðstefnan veitir þátttakendum einstakt tækifæri til að öðlast innsýn í starfsemi Atlantshafsbandalagsins og reynslu af ákvarðanatöku við krefjandi aðstæður.

Utanríkisráðuneytið, Alþingi, breska sendiráðið á Íslandi, YATA Ísland og Varðberg stóðu að ráðstefnunni.