Friður krefst hugrekkis til að ímynda sér annan heim
Mikilvægt er að draga lærdóm af leiðtogafundinum í Höfða árið 1986 og láta ekki aukna alþjóðlega spennu skyggja á möguleika til friðar. Þetta var á meðal þess sem fram kom í opnunarávarpi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem hún flutti á friðarráðstefnunni Imagine Forum sem fram fór í Reykjavík í dag.
Í tilefni þess að í ár eru fjörutíu ár liðin frá sögulegum leiðtogafundi í Höfða var litið til fortíðar á ráðstefnunni og rætt hvaða lærdóm megi draga af þeim tímamótafundi og hvort ríki heims geti enn unnið að diplómatískum lausnum á tímum vaxandi spennu í heiminum.
Í tengslum við ráðstefnuna átti utanríkisráðherra tvíhliða fundi með Volker Turk, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna (SÞ), og Izumi Nakamitsu, aðstoðarframkvæmdastjóra SÞ og æðsta fulltrúa stofnunarinnar í afvopnunarmálum.
Lagði grunn að sögulegum árangri
Í ræðu sinni rifjaði Þorgerður Katrín upp leiðtogafund Ronald Reagan, þáverandi Bandaríkjaforseta, og Mikail Gorbatstjov, leiðtoga Sovétríkjanna sálugu, í Höfða sem lauk fyrir sléttum fjörutíu árum í dag. Þó fundur tvímenninganna hafi ekki skilað samkomulagi stórveldanna um fækkun kjarnavopna á sínum tíma, hafi hann engu að síður lagt grunn að sögulegum árangri í afvopnunarmálum.
„Kannski var það raunverulegur árangur fundarins að framtíðin hætti, um stundarsakir, að virðast óumflýjanleg,“ sagði Þorgerður Katrín í ræðu sinni og lagði áherslu á að leiðtogarnir hefðu leyft sér að ímynda sér annan veruleika en samtímans sem einkenndist af ótta og vígbúnaðarkapphlaupi kalda stríðsins.
Friður krefst vinnu
Í ræðu sinni minnti utanríkisráðherra á að friður verði ekki til af sjálfu sér heldur þurfi að móta hann, semja um hann og viðhalda með þolinmæði, samkennd, stofnunum og diplómasíu að vopni.
Þorgerður Katrín vísaði jafnframt til orða Leós páfa um að friðaruppbygging sé virkt verkefni og skapandi hugsunar sé þörf til að efla frið.
Alþjóðasamfélagið þurfi ekki aðeins að verja miklum kröftum í undirbúning fyrir átök heldur einnig í að leita leiða til að koma í veg fyrir stríð, viðhalda samskiptum milli andstæðinga, draga úr hættu á stigmögnun og byggja upp traust þar sem það hafi glatast. Viðleitni til friðar megi ekki vera á kostnað réttlætis eða réttar ríkja til sjálfsvarnar.
„Án réttlætis getur ekki orðið varanlegur friður,“ sagði Þorgerður Katrín og undirstrikaði mikilvægi áframhaldandi stuðnings við baráttu úkraínsku þjóðarinnar fyrir sjálfstæði, fullveldi og réttinum til að hafa eitthvað um sína eigin framtíð að segja.
Alþjóðalögin verði að gilda um alla
Í ávarpi sínu sagði Þorgerður Katrín að nú fjörutíu árum eftir leiðtogafundinn í Höfða ríki enn á ný djúpstæð óvissa í alþjóðamálunum. Valdajafnvægið sé að breytast, átökum að fjölga og alþjóðalög, almenn mannréttindi og stofnanir sem ætlað er að setja valdi skorður, eigi undir högg að sækja um þessar mundir.
Þorgerður Katrín sagði þróun mála sérstaklega varhugaverða fyrir smáríki á borð við Ísland, sem eigi allt sitt undir alþjóðakerfi þar sem fullveldi er virt, samningar standist og þar sem reglur gilda óháð hentisemi.
Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu sé skýrt dæmi um hættuna sem stafi af brotum gegn fullveldi ríkja og friðhelgi landamæra. Sömu grundvallarreglur gildi í Mið-Austurlöndum, þar sem almennir borgarar gjalda fyrir óleyst átök og brot á alþjóðalögum, sem og í Súdan, þar sem stríð hafi leitt til grófra mannréttindabrota og umfangsmikils fólksflótta.
Eftirminnilegur fundur með Marco Rubio í Höfða
Í ræðu sinni minntist utanríkisráðherra á nýlega heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til landsins og fund þeirra í Höfða í síðustu viku.
„Staða heimsmálanna er auðvitað allt önnur en í október 1986. En að vera komin aftur á þennan stað, og nú í allt öðrum félagsskap, minnti óneitanlega á lærdóm sögunnar, styrk diplómasíu og hvernig hver kynslóð verður að beisla hana með sínum hætti, til að skrifa sína eigin sögu,“ sagði Þorgerður Katrín.
Að lokum sagði ráðherrann heiminn standa frammi fyrir flóknum og krefjandi áskorunum.
„En þær eiga allar eitt grundvallaratriði sameiginlegt, núverandi staða ræður ekki framtíðinni. Framtíðin hafði ekki verið skrifuð í Reykjavík fyrir fjörutíu árum og framtíð okkar er ekki heldur ráðin í dag,“ sagð Þorgerður Katrín. „Við getum enn hafnað þeirri hugmynd að heimur dagsins, þar sem átök fara vaxandi, sé eini heimurinn sem okkur standi til boða. Friðarstarfið hefst nefnilega á hugrekki til að ímynda sér aðra framtíð og einurð til að byggja hana.“