12. október 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Nýr formaður Jafnréttissjóðs

{image.Description}

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur skipað Jarþrúði Ásmundsdóttur sem formann Jafnréttissjóðs Íslands. Jafnréttissjóður veitir styrki til verkefna sem stuðla eiga að jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Sjóðurinn úthlutar styrkjum annað hvert ár og er næsta úthlutun í júní á næsta ári.

Jarþrúður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnsýslu- og jafnréttismálum og gegnt fjölbreyttum stjórnunar- og sérfræðistörfum, meðal annars innan stuðningsumhverfis nýsköpunar á Íslandi og í fjármálageiranum.

Í stjórn sjóðsins sitja auk Jarþrúðar: Rannveig S. Sigurvinsdóttir, dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og Martha Lilja Olsen, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Varamenn eru Bjarni Þór Pétursson, verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun, Stefan C. Hardonk, prófessor við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands og Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu.