12. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra fundaði með mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, í húsakynnum utanríkisráðuneytisins í Reykjavík í dag.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Volker Türk, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, sem er í vinnuheimsókn á Íslandi. Ræddu þau á fundi sínum um þær áskoranir sem blasa við hvað varðar stöðu mannréttindamála og virðingu fyrir lýðræði og alþjóðalögum á heimsvísu, samstarf Íslands og skrifstofu mannréttindafulltrúa (e. Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR) og starf Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.

„Það var ánægjulegt að taka á móti Volker Türk hér á Íslandi en við höfum átt góð samtöl á fundum okkar í Genf um mannréttindamál á heimsvísu og hlutverk Íslands. Við ræddum meðal annars stöðu mála í Íran, Afganistan, Súdan og Úkraínu, ásamt viðvarandi árásum og ofbeldi í Palestínu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Á tímum bakslags gagnvart grundvallar mannréttindum og viðvarandi áskorana tel ég mikilvægt Ísland haldi áfram sem sterkur málsvari fyrir mannréttindi fyrir öll, allstaðar. Á meðan við eigum sæti í mannréttindaráðinu munum við vinna áfram á uppbyggilegan hátt og í samstarfi við önnur aðildarríki hvað varðar að standa vörð um mannréttindi og alþjóðakerfið.“

Ísland veitir árleg óeyrnamerkt kjarnaframlög til OHCHR í gegnum rammasamning sem gildir til loka árs 2028. Þá eru einnig veitt framlög til þriggja valinna sjóða stofnunarinnar sem tengjast allsherjarúttektum og réttindum hinsegin fólks.

Türk fundaði einnig í dag með forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og utanríkismálanefnd Alþingis ásamt því að taka þátt í pallborði um stöðu mannréttinda í heimi vaxandi átaka á árlegu friðarráðstefnunni Imagine Forum í Silfurbergi í Hörpu. Þá byrjaði hann daginn á lokuðum fundi með íslenskum félagasamtökum þar sem mannréttindamál á Íslandi voru í brennidepli. Var Türk jafnframt gestur forseta Íslands á hringborði leiðtoga á sunnudaginn þar sem fjallað var um þær áskoranir sem veröldin stendur frammi fyrir.

Volker Türk hefur gegnt embætti mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (e. High Commissioner for Human Rights) frá því í október 2022 og í júlí endurnýjaði Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna umboð hans til næstu fjögurra ára.

-----
Ísland var kjörið til setu í mannréttindaráði SÞ fyrir tímabilið 2025-2027. Skrifstofa mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (e. Office of the High Commissioner for Human Rights, OHCHR) skipuleggur fundi mannréttindaráðsins og annast framkvæmd þeirra, jafnframt því sem hún sinnir vettvangsvinnu. Mannréttindaráðið fundar að jafnaði í þremur reglubundnum fundalotum á ári sem standa yfir í nokkrar vikur í senn. Frekari upplýsingar um setu Íslands í mannréttindaráðinu má finna á vefsíðu utanríkisráðuneytisins.