12. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Vinnustofur um netógnir haldnar á Íslandi á vegum CERT-IS og netöryggisdeildar Evrópuherstjórnar Bandaríkjanna

{image.Description}
Auk starfsfólks CERT-IS tók starfsfólk Landhelgisgæslunnar, Umbru og tölvudeildar utanríkisráðuneytisins þátt í vinnustofum CERT-IS og USEUCOM.

Í lok september sótti starfsfólk netöryggisdeildar J311 Evrópuherstjórnar Bandaríkjanna (e. U.S. European Command J311 Cyberspace Operations Division - USEUCOM) Ísland heim og hélt vinnustofur í samstarfi við CERT-IS, netöryggissveitar íslenskra stjórnvalda.

Vinnustofurnar voru tæknilegs eðlis þar sem lögð var áhersla á hagnýttar aðferðir í greiningu netógna. Leystu þátttakendur fjölbreytt verkefni undir leiðsögn sérfræðinga USEUCOM.

Auk starfsfólks CERT-IS tók starfsfólk Landhelgisgæslu Íslands, Umbru - þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins og tölvudeildar Utanríkisráðuneytisins þátt í vinnustofunum.

Heimsóknir sem þessar eru mikilvægar þar sem þær stuðla að aukinni sérfræðiþekkingu hérlendis og efla samræmingu vinnubragða við þau ríki og stofnanir sem Ísland starfar með á sviði netöryggis.

Heimsóknin er liður í aukinni alþjóðlegri samvinnu CERT-IS við erlenda samstarfsaðila og endurspeglar áframhaldandi áherslu á þekkingarmiðlun, færniuppbyggingu og eflingu netöryggis á Íslandi.