Utanríkisráðherra leiðir viðskiptasendinefnd Íslands til Bandaríkjanna
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fer fyrir viðskiptasendinefnd sem Amerísk-íslenska viðskiptaráðið (AMÍS) og Íslandsstofa skipuleggja til Minneapolis í Minnesota dagana 13.–14. október.
Á tveimur dögum fundar sendinefndin með leiðandi fyrirtækjum á svæðinu. Tilgangur ferðarinnar er að efla tengsl milli landanna á sviði viðskipta, kynna sér starfsemi fyrirtækja í Minneapolis og koma á beinum tengslum milli íslenskra og bandarískra fyrirtækja og hagaðila. Þá mun sendinefndin fá kynningu á stöðu og horfum í bandarísku efnahagslífi.
„Samband Bandaríkjanna og Íslands stendur styrkum fótum og hefur sjaldan verið nánara. Auk þess sem við deilum sameiginlegum hagsmunum á norðurslóðum og eigum í öflugu varnarsamstarfi, eru Bandaríkin eitt af okkar allra mikilvægustu viðskiptalöndum þar sem mörg íslensk fyrirtæki reiða sig á Bandaríkjamarkað fyrir vörur sínar og þjónustu,“ segir Þorgerður Katrín. „Það er heiður að fá að leiða öfluga viðskiptasendinefnd til Minneapolis og styrkja tengslin við fyrirtæki og viðskiptalífið á svæðinu enn frekar.“
Amerísk-íslenska viðskiptaráðið (AMÍS) var stofnað 1988 og er vettvangur fyrirtækja, stofnana og einstaklinga sem eiga í viðskiptum við Bandaríkin. Hlynur Ólafsson, formaður AMÍS, segir gagnkvæman vilja beggja ríkja að efla viðskipti sín á milli.
„Það er megintilgangur Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins (AMÍS) að efla og viðhalda viðskiptatengslum milli Íslands og Bandaríkjanna. Ferðir AMÍS vestur um haf undanfarin ár hafa skapað mikilvæg tengsl og orðið grunnur að auknum viðskiptum milli landanna. Það er ljóst að það er mikill vilji af hálfu beggja landa að blása til sóknar og í heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í liðinni viku kom skýrt fram að vilji bandarískra stjórnvalda er að efla viðskiptin enn frekar.“
Íslandsstofa er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda sem sinnir markaðs- og kynningarstarfi fyrir Ísland á erlendum vettvangi. Markmið hennar er að efla útflutning, laða að erlenda fjárfestingu og styrkja ímynd og orðspor Íslands á alþjóðavettvangi.
„Bandaríkin eru mikilvægasta viðskiptaland Íslands og nam útflutningur til Bandaríkjanna 413 milljörðum króna á seinasta ári. Þar munar mest um þjónustuútflutning en Bandaríkjamenn eru tæplega þriðjungur allra ferðamanna sem koma til Íslands og á seinasta ári voru þeir alls 662 þúsund talsins og fjölgaði um tæp 7% milli ára,“ segir Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu. „Vöruútflutningur til Bandaríkjanna nam 88 milljörðum króna á seinasta ári. Mest var flutt út af sjávarafurðum, fyrir rúmlega 35 milljarða króna en næst kom útflutningur vegna hugverkaiðnaðar, sem nam alls tæplega 26 milljörðum króna og hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2022.“