16. október 2026 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing um rekstrarframlög til að starfrækja framhaldsfræðslu

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir rekstrarframlög sem viðurkenndir fræðsluaðilar geta sótt um til að starfrækja framhaldsfræðslu. Markmiðið með rekstrarframlögunum er að tryggja aðgengi fullorðins fólks með stutta skólagöngu um allt land að framhaldsfræðslu með því að styrkja grunnrekstur fræðsluaðila. Umsækjendur verða að starfa eftir lögum um framhaldsfræðslu, nr. 27/2010 og hafa boðið, allt í senn, upp á vottaðar námskrár, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimat á hverri önn síðustu fimm ár.

Leitað er eftir samstarfi við þá viðurkenndu fræðsluaðila sem setja sér skýr og mælanleg markmið til að efla menntun og auka náms- og starfstækifæri þeirra sem lög um framhaldsfræðslu ná til. Fræðsluaðilarnir þurfa einnig að sýna fram á markvisst gæða- og umbótastarf sem leitt hefur til nýjunga í námi fullorðinna. Alþingi tekur ákvörðun um heildarupphæð rekstrarframlaganna í fjárlögum en með þessari auglýsingu er verið að auka gagnsæi í opinberum fjárveitingum til félaga/sjálfseignastofnana, í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti.

Til viðbótar við þær faglegu og fjárhagslegu kröfur sem gerðar eru í lögum um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og reglugerð um framhaldsfræðslu nr. 1163/2011 verða umsækjendur einnig að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Að gera grein fyrir árangri árin 2021-2025 í námi, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimati ásamt því að setja fram markmið og mælikvarða til ársins 2030 um þátttöku, námslok og hærra menntunarstig á sínu starfssvæði. Sérstaklega skal lýsa leiðum til að ná til hópa sem síst taka þátt í símenntun sem og til íbúa dreifðra byggða eða fólks utan vinnumarkaða.
  2. Að fræðslustarfið sé ekki rekið í hagnaðarskyni heldur á grundvelli samfélagslegra markmiða. Umsókn skal fylgja rekstraráætlun til 2030, ársreikningar síðustu þriggja ára og upplýsingar um aðrar tekjur.
  3. Að námsumhverfi og kennslurými uppfylli kröfur um algilda hönnun einkum með tilliti til fullorðinna með hreyfihömlun, sbr. til hliðsjónar 6.1.3. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
  4. Að lýsa hæfni og starfsþróunarmöguleikum kennara og leiðbeinenda og tiltaka sérstaklega hvort kennsluréttindi séu til staðar við kennslu íslensku og stærðfræði.
  5. Að formlegt samstarf sé til staðar við skóla og atvinnulíf sem auðveldar skil á milli skólastiga, raunfærnimat og viðurkenningu á námi, sbr. 2. og 3. gr. laga um framhaldsfræðslu.
  6. Að birta ársreikninga, gæðaúttektir, umbótaáætlanir og upplýsingar um réttindi nema á heimasíðu. Umbótaáætlun síðustu þriggja ára skal fylgja með umsókn.

Sótt er um með því að senda greinargerð og fylgigögn á [email protected]. Þar má einnig óska eftir frekari upplýsingum. Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2026. Við mat á umsóknum verður sérstakt tillit tekið til byggðasjónarmiða. Aðilar sem fá nú þegar framlög á grundvelli laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 geta ekki sótt um. Stefnt er að undirritun samninga til fimm ára með fyrirvara um heimildir í fjárlögum.