Skýrsla starfshóps um fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks
Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns og ýmis álitamál sem því tengjast, hefur skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum og tillögum.
Síðustu ár hefur fjölgað tilvikum þar sem heilbrigðisstarfsfólk er beðið um að votta barnsfæðingu sem þeir hafa ekki verið viðstaddir. Eins og fram kemur í skýrslu hópsins gera barnalög ekki ráð fyrir að börn geti fæðst án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns og stjórnvöld hafa verið óviðbúin því hvernig tryggja skuli réttmæta skráningu í þjóðskrá. Vitað er um að minnsta kosti 23 tilvik þar sem konur kusu að fæða án heilbrigðisstarfsmanns árin 2022–2025.
Skortur á skýru verklagi getur torveldað skráningu barns og staðfestingu á því hver fæddi það. Hópurinn bendir jafnframt á að móðir og barn geti farið á mis við nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, meðal annars skoðun og skimanir nýbura. Ástæður þess að konur standa utan þjónustunnar eru ólíkar; sumar kjósa það sjálfar, en aðrar kunna að búa við ofbeldi, mansal eða aðrar hindranir.
Starfshópurinn bendir á að á meðvitaðri sniðgöngu á heilbrigðisþjónustu í barneignarferli séu margar hliðar, burt séð frá ógn við öryggi móður og barns, þar sem lítil og jafnvel engin meðgönguvernd hefur farið fram og áhættuþættir sem skimað er eftir í meðgönguvernd því óþekktir. Aðrar hliðar á þessu máli eru réttur einstaklings til að afþakka heilbrigðisþjónustu, réttur nýfædds barns til heilbrigðisþjónustu, réttur barns til að vita uppruna sinn og til réttrar skráningar í opinberum gögnum.
Starfshópurinn leggur m.a. til samræmt verklag við vottun fæðinga og að foreldrar fái skýrar upplýsingar um mikilvægi þess að leita til heilbrigðisstarfsmanns innan 48 klukkustunda frá fæðingu.
Tillögur hópsins:
- Innleiða samræmt verklag við vottun fæðinga án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns.
- Móðir framvísi gildum persónuskilríkjum persónulega a.m.k. einu sinni á meðgöngu eða við fæðingu.
- Efla upplýsingagjöf til foreldra um mikilvægi þess að leita til heilbrigðisþjónustu innan 48 klukkustunda frá fæðingu.
- Tryggja að öll börn sem fæðast án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns hafi aðgang að viðunandi heilbrigðisþjónustu og aðgang að ungbarnavernd.
- Taka til skoðunar heimildir og fyrirkomulag sjálfvirkrar tilkynningar til barnaverndaryfirvalda í tilvikum þar sem vafi leikur á skráningu barns eða forsjárstöðu þess, með hliðsjón af hagsmunum og vernd barns.
Skýrsla starfshóps um fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks