29. október 2026 /
Forsætisráðuneytið

1394/2026. Úrskurður frá 29. október 2026

Hinn 29. október 2026 kvað úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóð­andi úrskurð nr. 1394/2026 í máli ÚNU 26020011.

Kæra og máls­atvik

Með erindi, dags. 24. febrúar 2026, kærði […] til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ákvörðun lög­reglu­stjór­ans á Suðurnesjum um að synja beiðni hans um upp­lýs­ingar.

Hinn 8. janúar 2026 óskaði kærandi eftir því við lög­reglu­stjór­ann á Suðurnesjum að hann fengi aðgang að verk­lags­reglum embættisins um notkun búk­mynda­véla og um upptökur í lög­reglu­bif­reiðum. Beiðninni var synjað 15. janúar 2026 á grundvelli 8. og 10. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012.

Máls­með­ferð

Kæran var kynnt lög­reglu­stjór­anum á Suðurnesjum 25. febrúar 2026 og embættinu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál yrðu afhent gögn sem kæran varðar.

Umsögn lög­reglu­stjór­ans á Suðurnesjum barst úrskurð­ar­nefnd­inni 23. mars 2026. Í umsögninni vísar lög­reglu­stjór­inn til 1. tölul. 10. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012, þagn­ar­skyldu sem hvíli á lögreglu, sbr. 22. gr. lög­reglu­laga nr. 90/1996, X. kafla stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993 og til ákvæða í stjórn­sýslu­lögum sem undanskilja upp­lýs­ingar um rannsókn sakamála frá upp­lýs­inga­rétti aðila stjórn­sýslu­máls. Í umsögninni kemur fram að lög­reglu­stjór­inn á Suðurnesjum telji að umbeðnir verkferlar falli undir 1. tölul. 10. gr. sem heimilar að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almanna­hags­munir krefjast, enda hafi þau að geyma upp­lýs­ingar um öryggi ríkisins eða varnarmál. Birting myndi varpa ljósi á nákvæmar upp­lýs­ingar um tæknilegar aðferðir og verkferla lögreglu í lög­reglu­að­gerðum, sem kynni að veita brotamönnum innsýn í aðferðir lögreglu sem gæti auðveldað þeim að komast undan upptöku og torvelda rannsóknir. Þrátt fyrir að meginregla um gagnsæi sé mikilvæg sé það jafnframt mat lög­reglu­stjór­ans að hinir ríkari hags­munir af því að vernda rann­sókn­ar­hags­muni, verk­lags­reglur í aðgerðum lögreglu og almanna­ör­yggi vegi þyngra í þessu tilviki.

Umsögn lög­reglu­stjór­ans á Suðurnesjum var kynnt kæranda með erindi, dags. 24. mars 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athuga­semdum. Í athuga­semdum kæranda, dags. 25. mars 2026, kemur fram að kærandi telji eðlilegt að almenningur fái upp­lýs­ingar um hvernig staðið sé að upptökum lög­regl­unnar þar sem tilgangur þeirra sé m.a. að tryggja öryggi þeirra sem lög­reglu­menn hafi afskipti af. Þá telur kærandi óljóst hvernig verk­lags­regl­urnar kunni að auðvelda brotamönnum að komast undan upptöku.

Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurð­ar­nefndin hefur tekið mið af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niður­staða

1.

Í máli þessu er deilt um aðgang að verk­lags­reglum um notkun búk­mynda­véla og um upptökur í bifreiðum lög­regl­unnar á Suðurnesjum. Af gögnum málsins verður ráðið að deilt sé um aðgang kæranda að eft­ir­far­andi gögnum:

1. Búk­mynda­vélar. Verk­lags­regla. Útgáfudagur 29.11.2021.

2. Búk­mynda­vélar. Vinnulýsing. Útgáfudagur 29.11.2021.

3. Mynda­véla­bún­aður, notkun og varsla stafrænna gagna. Verk­lags­regla. Útgáfudagur 8.11.2021.

4. Mynda­véla­bún­aður, notkun og varsla stafrænna gagna. Vinnulýsing. Útgáfudagur 8.11.2021.

Lög­reglu­stjór­inn á Suðurnesjum tók ákvörðun um aðgang kæranda að umbeðnum gögnum með bréfi dags. 15. janúar 2026. Ljóst er af gögnum að svarið barst kæranda þann dag.

Samkvæmt 1. mgr. 22. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 skal kæra vegna synjunar á beiðni um aðgang að gögnum borin undir úrskurð­ar­nefnd­ina innan 30 daga frá því að þeim sem fór fram á aðgang að gögnum var tilkynnt um ákvörðun. Kæra málsins barst úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þann 24. febrúar 2026, eða eftir að tilvitnaður frestur var út runninn.

Samkvæmt 28. gr. stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993 skal stjórn­sýslu­kæru vísað frá hafi hún borist að liðnum kæru­fresti. Samkvæmt 1. tölul. 28. gr. skal þó taka mál til úrskurðar verði talið afsakanlegt að kæra hafi ekki borist fyrr. Af gögnum málsins verður ekki séð að kærandi hafi fengið leið­bein­ingar um kæruheimild og kæru­frest, svo sem skylt er að veita honum skv. 1. mgr. 19. gr. upp­lýs­inga­laga. Af þeim sökum telur úrskurð­ar­nefndin, eins og hér stendur á, að afsakanlegt sé að kæran hafi ekki borist innan kæru­frests. Mun úrskurð­ar­nefndin því taka kæruna til efnislegrar meðferðar.

2.

Úrskurð­ar­nefndin hefur farið yfir þau gögn sem hin kærða ákvörðun laut að. Um er að ræða tvö skjöl með verk­lags­reglum og tvö skjöl með nánari vinnu­lýs­ingu um framkvæmd verk­lags­regln­anna.

Fyr­ir­liggj­andi verk­lags­reglur, sem eru gefnar út 8. og 29. nóvember 2021, lýsa með almennum hætti verklagi við skráningu og vörslu gagna. Vinnu­lýs­ing­arnar eru til stuðnings verk­lags­regl­unum og fjalla þær á ítarlegri hátt um hvernig og hvenær eigi að nota búk­mynda­vélar og mynda­véla­búnað, hvenær og hvernig eigi að skrá upptökur og loks um frágang og vörslu gagnanna.

3.

Í hinni kærðu ákvörðun, dags. 15. janúar 2026, er m.a. vísað með almennum hætti til 8. gr. upp­lýs­inga­laga án frekari rök­stuðn­ings. Þá hefur embættið ekki gert frekari grein fyrir því á síðari stigum hvernig lagagreinin kunni að eiga við um gögnin.

Í 8. gr. upp­lýs­inga­laga er fjallað um hvaða gögn teljist til vinnugagna sem geti eða kunni að vera undanþegin upp­lýs­inga­rétti samkvæmt upp­lýs­inga­lögum. Þar segir í 1. mgr.:

Vinnu­gögn teljast þau gögn sem stjórn­völd eða aðrir aðilar skv. I. kafla hafa ritað eða útbúið til eigin nota við undirbúning ákvörðunar eða annarra lykta máls. Nú eru gögn afhent öðrum og teljast þau þá ekki lengur til vinnugagna nema þau hafi einvörðungu verið afhent eft­ir­lits­að­ila á grundvelli laga­skyldu.

Samkvæmt tilvitnuðu ákvæði verður gagn aðeins talið vinnugagn hafi það verið ritað eða útbúið við undirbúning ákvörðunar eða annarra lykta máls. Á þessu skilyrði er hnykkt í greinargerð er fylgdi frumvarpi því er varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012, en þar segir m.a. í athuga­semdum við ákvæðið:

Af orðalagi 1. mgr. 8. gr. leiðir að til að skjal teljist vinnugagn þarf almennt þremur skilyrðum að vera fullnægt. Gagn þarf þannig í reynd að vera und­ir­bún­ings­gagn, það skal ritað eða útbúið af starfs­mönnum stjórn­valds­ins (eða lög­aðil­ans) sjálfs og má ekki hafa verið afhent öðrum. Fyrsta skilyrðið þarfnast ekki sérstakra skýringa en er þó mjög þýð­ing­ar­mikið við afmörkun hugtaksins.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál telur að umbeðin gögn séu ekki und­ir­bún­ings­gögn í skilningi 8. gr. upp­lýs­inga­laga. Þannig verður ekki ráðið af verk­lags­regl­unum og vinnu­lýs­ing­unum að þeim hafi verið ætlað að undirbúa ákvörðun eða aðrar lyktir máls innan lög­regl­unnar. Þegar af þessari ástæðu fellst úrskurð­ar­nefndin ekki á það með lög­reglu­stjór­anum á Suðurnesjum að verk­lags­regl­urnar og vinnu­lýs­ing­arnar teljist vinnu­gögn.

4.

Í upphaflegri synjun, dags. 15. janúar 2026, og í umsögn sinni í tilefni af fyr­ir­liggj­andi kæru, hefur lög­reglu­stjór­inn á Suðurnesjum einnig byggt á að umbeðin gögn varði öryggi ríkisins í skilningi 1. tölul. 10. gr. upp­lýs­inga­laga, nr. 140/2012.

Í tilvitnuðu ákvæði kemur fram að heimilt sé að takmarka aðgang almennings að gögnum þegar mikilvægir almanna­hags­munir krefjast, „enda hafi þau að geyma upp­lýs­ingar um […] öryggi ríkisins eða varnarmál.“

Í athuga­semdum með frumvarpi því sem varð að upp­lýs­inga­lögum kemur fram að ákvæðinu sé ætlað að vernda mjög þýð­ing­ar­mikla hags­muni og berist upp­lýs­ingar þeim tengdar út geti það haft afdrifa­ríkar afleiðingar. Þá kemur fram í athuga­semd­unum að með öryggi ríkisins í skilningi 1. töluliðar 10. gr. upp­lýs­inga­laga sé meðal annars vísað til þess hlutverks rík­is­valds­ins að tryggja öryggi ríkisins inn á við og að skipulag löggæslu kunni að falla þar undir.

Þau gögn sem kærandi hefur óskað eftir að fá aðgang að eiga það sam­eig­in­legt að geyma lýsingar á verklagi lögreglu við öflun sönn­un­ar­gagna auk þess sem þeim er ætlað að tryggja að lög­gæslu­mynda­vélar séu notaðar með réttum hætti og í samræmi við kröfur embættisins og löggjöf. Tilgangur reglnanna er að auka gæði rannsókna, auka líkur á að bera megi kennsl á brotamenn og varpa ljósi á máls­atvik þegar ágrein­ingur er um atvika­lýs­ingu af vettvangi. Reglurnar hafa því að geyma upp­lýs­ingar um skipulag löggæslu.

Við nánara mat á því hvort upp­lýs­ingar um skipulag löggæslu falli undir 1. tölul. 10. gr. upp­lýs­inga­laga er ekki nægjanlegt að horfa til þess hvort þær lúti að skipulagi lög­regl­unnar heldur verður að horfa heildstætt til þess hvort upp­lýs­ing­arnar sem gögnin geyma varði í reynd mikilvæga hags­muni. Hefur í því sambandi m.a. verið litið til þess hvort aðgangur almennings myndi valda því að aðgerðir lögreglu gætu orðið þýð­ing­ar­lausar eða ekki skilað tilætluðum árangri verði þær á almanna­vit­orði, sbr. til að mynda úrskurði úrskurð­ar­nefnd­ar­innar nr. A-151/2002, A-529/2014, 541/2014, 601/2015 og 1202/2024.

Í umbeðnum gögnum er að finna almennar lýsingar um notkun mynda­véla­bún­aðar, bæði búk­mynda­vélar og mynda­véla­búnað í lög­reglu­bif­reiðum. Hvorki er þar að finna nánari lýsingar á rann­sókn­ar­að­ferðum lög­regl­unnar eða óþekktar og viðkvæmar tæknilegar upp­lýs­ingar um þau kerfi sem lögreglan notar. Í vinnu­lýs­ingum kemur jafnframt fram að lög­reglu­maður skuli tilkynna viðstöddum um upptöku þegar það á við og þegar það er hægt. Virðist því ekki varða rann­sókn­ar­hags­muni hvort upplýst sé hvenær mynda­véla­bún­aður er notaður. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti upp­lýs­ing­arnar kynnu að nýtast þeim sem hyggjast fremja eða hafa framið afbrot, en notkun búnaðarins er á forræði lög­reglu­manna og óljóst hvernig brotamaður gæti komist hjá upptöku með þeim upp­lýs­ingum sem fram koma í umbeðnum gögnum.

Verður því ekki séð að takmörkun aðgangs að þessum gögnum sé nauðsynleg til að vernda öryggi ríkisins, hún sé nauðsynleg til að vernda mjög þýð­ing­ar­mikla hags­muni eða hindra að upp­lýs­ingar þeim tengdar berist út af ótta við afdrifa­ríkar afleiðingar. Af þessum sökum eru ekki skilyrði til að takmarka aðgang að þeim á grundvelli 1. tölul. 10. gr. upp­lýs­inga­laga og ber að veita kæranda aðgang að þeim á grundvelli 5. gr. laganna.

Úrskurð­ar­orð

Lög­reglu­stjór­inn á Suðurnesjum skal veita kæranda, […], aðgang að verk­lags­reglu og vinnu­lýs­ingu um búk­mynda­vélar, útgefnum 29. nóvember 2021 og að verk­lags­reglu og vinnu­lýs­ingu um mynda­véla­búnað, notkun og vörslu stafrænna gagna, útgefnum 8. nóvember 2021.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir

Var efnið hjálplegt?