10. nóvember 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Nýtt fræhús er risið á Vöglum

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnir sér starfsemina að Vöglum. Ljósmynd/Land og skógur

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, afhenti nýlega Land og skógi formlega nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal. Fræhúsið var reist með sérstakri fjárveitingu samkvæmt ákvörðun ráðherra og gengu framkvæmdir hratt og örugglega. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á um 100 milljónir króna og hefur hún staðist.

Nýja fræhúsið er hátt í 1.700 fermetrar að stærð og búið fullkomnu hitastýringarkerfi. Það gerir kleift að stórauka framleiðslu á lerkiblendingnum Hrymi sem hentar vel til ræktunar á rýru landi í öllum landshlutum. Hrymur vex í það minnsta tvöfalt betur en rússalerki og bindur þar af leiðandi mikið kolefni. Auk Hryms er ráðgert að aðstaðan á Vöglum nýtist til kynbótastarfs á öðrum trjátegundum og bæti þannig efnivið og gæði í íslenskri skógrækt. Ráðgert er að ræktun í nýju fræhúsi á Vöglum hefjist næsta sumar.

Valgerður Jónsdóttir, teymisstjóri plöntu- og fræmála, kynnti Jóhanni Páli fræhúsið við tilefnið, sem og starfsemi Lands og skóga á Vöglum sem m.a. felst í umsjón þjóðskóganna á Norðurlandi. Jafnframt skoðaði Jóhann Páll eldaskála sem tekinn var formlega í notkun í Vaglaskógi á liðnu sumri og reistur var fyrir framlög úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

 

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Við höfum í fyrsta sinn sett okkur tölulegt markmið gagnvart Parísarsamningnum um að draga úr nettólosun vegna landnotkunar og aukin skógrækt er mikilvægur hluti af því. En þá þurfum við líka að skapa forsendur fyrir meiri skógrækt. Þar skiptir starfsemin á Vöglum miklu máli. Með nýja fræhúsinu stígum við mikilvægt skref til að auka innlenda framleiðslu á lerkifræi, draga úr þörfinni fyrir innflutning og tryggja fjölbreyttara úrval trjáplantna til íslenskrar skógræktar. Til hamingju, Land og skógur.“

 

Var efnið hjálplegt?