11. nóvember 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Íslenskar stofnanir hvattar til þátttöku í heilbrigðissamstarfi ESB

{image.Description}
Heilbrigðisáætlun Evrópusambandsins EU4Health

Heilbrigðisráðuneytið kallar eftir óskum íslenskra stofnana um tilnefningu til þátttöku í samvinnuverkefnum EU4Health, heilbrigðisáætlunar Evrópusambandsins (ESB). Frestur til að skila óskum til ráðuneytisins er 10. desember 2026. Formleg tilnefning ráðuneytisins er skilyrði fyrir þátttöku í þessum verkefnum.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur samþykkt vinnuáætlun EU4Health fyrir árið 2026. Heildarfjármagn hennar nemur um 93 milljörðum íslenskra króna (um 680 milljónum evra) og verður úthlutað með beinum styrkjum, opnum samkeppnisstyrkjum og útboðum. Áætlunin felur í sér tækifæri fyrir íslenskar stofnanir og aðra gjaldgenga aðila til að fjármagna hluta af þátttöku í fyrir fram skilgreindum heilbrigðisverkefnum, efla fagþekkingu og taka þátt í evrópsku heilbrigðissamstarfi.

Samvinnuverkefni, svonefnd Joint Actions, eru mikilvægur hluti vinnuáætlunarinnar. Til þeirra eru veittir beinir styrkir án almenns samkeppnisútkalls. Styrkirnir eru ætlaðir stjórnvöldum og stofnunum sem bera ábyrgð á heilbrigðismálum í þátttökuríkjunum.

Opnað hefur verið fyrir formlegt tilnefningarferli vegna þessara verkefna. Íslenskar stofnanir sem óska eftir þátttöku þurfa að skila ósk um tilnefningu til heilbrigðisráðuneytisins, póstfang: [email protected], eigi síðar en 10. desember 2026.

Opnir samkeppnisstyrkir krefjast ekki tilnefningar

Auk samvinnuverkefnanna býður EU4Health upp á opna samkeppnisstyrki, svonefnd Open Calls. Allir gjaldgengir aðilar geta sótt um þá og ekki er krafist formlegrar tilnefningar ráðuneytisins.

Framkvæmdastofnun ESB á sviði heilbrigðis- og stafrænna málefna, (e. European Health and Digital Executive Agency (HaDEA)), annast stærstan hluta úthlutana áætlunarinnar og heldur utan um umsóknarferli og útboð. Upplýsingar um opin útköll, umsóknarskilyrði og fresti eru birt á vef stofnunarinnar.

Helstu áherslur

Vinnuáætlun EU4Health 2026 styður við innleiðingu forgangsmála Evrópusambandsins og skiptist í fimm megináherslusvið, þ.e. neyðarviðbúnað, heilsueflingu og sjúkdómaforvarnir, heilbrigðiskerfi og heilbrigðisstarfsfólk, stafræna heilbrigðisþjónustu og ósmitbæra sjúkdóma.

Ísland hefur um árabil tekið þátt í heilbrigðisáætlunum Evrópusambandsins, nú síðast EU4Health fyrir tímabilið 2021–2027. Þátttakan hefur skapað íslenskum stofnunum tækifæri til samstarfs um lýðheilsu, heilbrigðisöryggi og þróun heilbrigðisþjónustu, meðal annars með stafrænum lausnum.

Ráðgjöf um þátttöku og umsóknir

Landstengiliðir EU4Health á Íslandi starfa hjá embætti landlæknis. Þeir veita ráðgjöf og leiðbeiningar varðandi áætlunina, s.s. þátttökumöguleika, skilyrði, tilnefningar í samvinnuverkefni og upplýsingar um opna samkeppnisstyrki.

Heilbrigðisráðuneytið hvetur íslenskar stofnanir og sérfræðinga til að kynna sér tækifærin og hefja tímanlega undirbúning að þátttöku.

 

Var efnið hjálplegt?