13. nóvember 2026 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tölur í stað bókstafa við lok grunnskóla

{image.Description}

Nýr einkunnakvarði hefur verið staðfestur með breytingu á aðalnámskrá grunnskóla. Skólaárið 2026–2027 fá nemendur í 10. bekk einkunnir í tölum í stað bókstafa.

Markmiðið er að gera einkunnir skýrari, auka jafnræði milli skóla og veita nemendum og foreldrum betri upplýsingar um námsstöðu, framfarir og hæfni. Tölukvarðinn er kunnuglegur og gefur meira svigrúm til að sýna framfarir og ólíka hæfni. Með skýrri merkingu einkunna og sameiginlegum viðmiðum er hægt að stuðla að sanngjarnara námsmati og gera nemendum auðveldara að sjá hvar þeir standa og hvert næsta skref er.

Með breytingunni eru skólar hvattir til að nota kvarðann 1–10 við námsmat á skólaárinu, svo sem fyrir einstök próf og verkefni.

Við útskrift (lokaeinkunn) verður notaður kvarðinn 4–10. Ekki er talið réttlætanlegt eða uppbyggilegt að gefa grunnskólabarni 1-3 í lokaeinkunn eftir heilan skólavetur.

Hvernig verður lokaeinkunn reiknuð?

Lokaeinkunn byggist á heildarmati á þekkingu, leikni og hæfni nemandans út frá fjölbreyttum gögnum og námsmati vetrarins.

Lokaeinkunn er reiknuð sem vegið meðaltal einkunna fyrir einstaka flokka og námunduð að næstu heilu tölu.

Taka má dæmi um slíka nálgun úr íslensku:

 

ÍslenskaTalað málLestur og lesskilningurBókmenntirRitunMál og málnotkunLokaeinkunn
10. bekkur20%15%25%30%10%100%

 

Greina þarf á milli einkunna fyrir einstök verkefni og próf annars vegar og lokaeinkunnar eftir heilt skólaár hins vegar. Þótt sami talnakvarði komi við sögu er verið að meta ólíka hluti. Einkunn fyrir einstakt verkefni lýsir frammistöðu í því verkefni, en lokaeinkunn er heildstætt mat á þeirri hæfni sem nemandinn hefur sýnt yfir skólaárið, með hliðsjón af hæfniviðmiðum aðalnámskrár og fjölbreyttum matsgögnum.

Þegar kemur að námsmati á verkefnum og einstaka prófum má nota einkunnakvarðann 1-10. Þá getur einkunnin 7,5 merkt að nemandinn hafi náð 75% árangri í viðkomandi verkefni eða prófi.

Sé hins vegar um að ræða „lokaeinkunn“ nemanda eftir heilt skólaár, skal hún birt á kvarðanum 4–10 og er námundað að næstu heilu tölu. Lokaeinkunn samkvæmt aðalnámskrá er mat á „hæfni” nemenda eftir heilt skólaár en er ekki einkunn fyrir eitt lokapróf.

Hvað merkja einkunnirnar?

Einkunnirnar lýsa því hversu vel nemandi hefur náð þeirri hæfni sem aðalnámskrá gerir ráð fyrir:

  • 4: Nemandi hefur ekki náð hæfninni sem stefnt er að. Skólinn lýsir sérstaklega því sem nemandinn hefur náð tökum á.
  • 5 og 6: Nemandi er á leið að því að ná hæfninni en þarf að taka undirbúningsáfanga í íslensku, stærðfræði og ensku fái viðkomandi nemandi 5 eða 6 í þeim greinum.
  • 7: Nemandi hefur náð hæfninni sem stefnt er að.
  • 8 og 9: Nemandi sýnir meiri dýpt, öryggi og sjálfstæði við að beita hæfninni.
  • 10: Nemandi sýnir framúrskarandi hæfni og stöðuga frammistöðu. Nemandi vinnur af miklu öryggi og sjálfstæði og getur túlkað, metið og nýtt þekkingu sína við fjölbreyttar og krefjandi aðstæður. Ekki er gerð krafa um umframhæfni en þeirri hæfni sem gerð er krafa um í grunnskóla. Þá er ekki gerð krafa að slíkur nemandi þurfi að ljúka framhaldsskólaáfanga á grunnskólagöngu sinni til að eiga möguleika að fá 10.

Hvað gerist næst?

Skólar skulu ákveða vægi hæfniþáttanna (s.s. vægi talaðs máls, lestrar og lesskilnings, bókmennta o.s.frv. í ofangreindu dæmi) fyrir lok janúar 2027 og geta þeir stuðst við leiðbeiningar ráðuneytisins í þeim efnum. Nánari útfærsla námsmatsins skal birt í skólanámskrá fyrir útskrift vorið 2027.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) styður skóla við breytingarnar. Í könnun sem lögð var fyrir innleiðingarteymi skóla í byrjun október kemur fram að tæplega 90% þeirra 105 skóla sem tóku þátt töldu innleiðingarfundi MMS nýtast vel og um 70% skóla skildu nýja einkunnakvarðann mjög vel eða vel. MMS undirbýr einnig reiknitól fyrir lokaeinkunnir þar sem unnið er að öruggum, sjálfvirkum flutningi einkunna vegna innritunar í framhaldsskóla vorið 2027. Lausnin verður prófuð með skólum áður en hún verður tekin í notkun um allt land og varaleiðir verða tiltækar.

Breytingin hefur tekið gildi og gildir til 1. júlí 2027.

Var efnið hjálplegt?