Rætt um styrkingu norræns varnarsamstarfs
Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu um eflingu norræns varnarsamstarfs undir merkjum NORDEFCO í Osló í dag og í gær. Málefni Atlantshafsbandalagsins, vaxandi framlög til varnarmála og aukin fælingar- og varnargeta bandalagsins, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, sem og ákvörðun um vinnu við samning um varnarsamvinnu Norðurlandanna, voru meðal þess sem rætt var á fundinum. Yfirmenn herafla Norðurlandanna tóku þátt í hluta fundarins ásamt Nick Perry hershöfðingja, sem er nýr yfirmaður aðgerðarstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk í Bandaríkjunum.
Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkjanna kemur fram að nýr kafli í norræna varnarsamstarfinu sé að hefjast, með aukinni ábyrgð Evrópu á vörnum álfunnar. Norðurlöndin eru þar ekki undanskilin og taka sinn skerf af byrðaskiptingunni innan Atlantshafsbandalagsins, og því var ákveðið á fundinum að hefja vinnu við gerð norræns varnarsamstarfssamnings. Slíkur samningur kemur til með að skerpa á lagalegri umgjörð norrænnar varnarsamvinnu og renna þannig styrkari stoðum undir vaxandi samstarf milli norrænu ríkjanna og eflir framlag þeirra til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins.
Þá var einnig haldinn sameiginlegur fundur NORDEFCO og Haga-samstarfsins svokallaða, sem er samstarf Norðurlandanna er lýtur að almannavörnum. Þar var lögð sérstök áhersla á viðnámsþrótt samfélaga, en Norðurlöndin leggja vaxandi áherslu á að efla samstarf og samskipti sín á milli á sviði almannavarna og áfallaþols.
Samhliða NORDEFCO-fundinum fór fram Atlantic Future Forum-ráðstefnan á vegum breskra stjórnvalda, um helstu áskoranir í öryggis- og varnarmálum. Þar hittust einnig yfirmenn flota Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) og staðfestu aukið samstarf um varnar og öryggismál á hafi.
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir hönd Íslands auk þess sem Páll Winkel, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, sótti Haga-fundinn.
Noregur er formennskuríkið í norræna varnarsamstarfinu (NORDEFCO) á þessu ári en eftir áramót taka Svíar við keflinu.