13. nóvember 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Einfaldara regluverk og styttri ferlar við húsnæðisuppbyggingu

{image.Description}

Unnið er að einföldun regluverks og stjórnsýslu í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu til að draga úr reglubyrði og gera ferla fljótlegri og skilvirkari. Meðal verkefna eru breytingar á skipulagslögum, byggingarreglugerð og lögum um mannvirki sem eiga að greiða fyrir húsnæðisuppbyggingu án þess að slaka á kröfum um gæði og öryggi.

Ráðherra og ríkisstjórnin í heild hafa lagt áherslu á einföldun regluverks, meðal annars í atvinnustefnu Íslands til ársins 2035 og aðgerðaáætlun hennar fyrir árin 2026-2027. Breytingunum á sviði mannvirkja- og skipulagsmála er ætlað að greiða fyrir uppbyggingu með skilvirkari stjórnsýslu, skýrari ábyrgð og aukinni nýtingu stafrænna lausna.

Einfaldari skipulagslög

Á þingmálaskrá vetrarins er frumvarp um breytingar á skipulagslögum sem miðar að því að einfalda og stytta skipulagsferla og gera þá skilvirkari og fyrirsjáanlegri.

  • Með breytingunum er meðal annars stefnt að því að stytta afgreiðslutíma skipulagsbreytinga og fækka óþarfa skrefum í málsmeðferð.
  • Einnig er lögð áhersla á aukna notkun stafrænna lausna og að Skipulagsgátt verði sameiginlegur vettvangur fyrir birtingu skipulagsgagna og móttöku athugasemda og umsagna.  
  • Breytingunum er ætlað að greiða fyrir málsmeðferð skipulagsmála án þess að skerða möguleika almennings til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Einfaldari byggingarreglugerð

Heildarendurskoðun byggingarreglugerðar stendur nú yfir og voru tillögur HMS að einfaldari og nútímalegri reglugerð kynntar í sumar. Núgildandi reglugerð er umfangsmikil, alls 400 greinar og 142 blaðsíður, og hefur verið breytt 17 sinnum frá því hún tók gildi árið 2012.

  • Með endurskoðuninni er stefnt að því að stytta og einfalda reglugerðina, fella niður óþarfa stjórnsýslukröfur og gefa hönnuðum og öðrum fagaðilum aukið svigrúm til að útfæra lausnir. 
  • Í stað ítarlegra fyrirmæla um hvernig mannvirki skuli byggð verði meiri áhersla lögð á skýrar grunnkröfur, markmið og þá virkni sem mannvirki þurfa að uppfylla. Þannig verði hægt að nýta fjölbreyttari lausnir og nýja tækni án þess að slaka á kröfum um gæði og öryggi. 
  • Breytingunum er meðal annars ætlað að draga úr byggingarkostnaði, stuðla að nýsköpun í mannvirkjagerð og gera regluverkið skýrara og aðgengilegra.

Endurskoðunin fer fram í áföngum og hafa einstakir hlutar nýrrar byggingarreglugerðar verið kynntir í opnu samráði hjá HMS síðastliðna mánuði. Reglugerðin í heild sinni verður síðan sett í samráðsgátt stjórnvalda á næsta ári.

Breytt byggingareftirlit

Frumvarp um breytingar á lögum um mannvirki var nýverið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

  • Markmiðið er að endurskoða byggingareftirlit og stjórnsýslu mannvirkjamála, skýra ábyrgð þeirra sem koma að byggingaframkvæmdum og gera byggingareftirlit markvissara sem stuðli að auknum gæðum og betri neytendavernd.
  • Einnig er lögð til aukin samræming í umsóknum og yfirferð gagna auk samræmdrar skráningar á upplýsingum um mannvirki í gegnum mannvirkjaskrá.

Með samráðinu var óskað eftir reynslu, ábendingum og sjónarmiðum þeirra sem vinna samkvæmt reglunum og þeirra sem þær eiga að vernda. Fjölmargar efnislegar umsagnir bárust og hefur framlagningu frumvarpsins verið frestað fram yfir áramót á meðan unnið er úr umsögnunum í samstarfi við hagaðila.

Aukin samlegð

Til viðbótar þessu hefur áhersla verið lögð á aukna samlegð og samþættingu verkefna.

  • Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skipulagsstofnun voru sameinaðar fyrr á þessu ári í eina stofnun. Allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, er því nú á höndum einnar stofnunar: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

 

Hindrunum rutt úr vegi

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að breytingarnar miði allar að því að gera allt ferlið við húsnæðisuppbyggingu einfaldara og greiðara.

„Í allt of mörg ár hefur flókið regluverk tafið framkvæmdir og gert fólki erfiðara fyrir en þörf er á. Nú viljum við ryðja þessum hindrunum úr vegi og skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu, án þess að gefa nokkurn afslátt af gæðum eða öryggi,“ segir ráðherra.

Var efnið hjálplegt?